„Reiðmaðurinn“ í reiðhöll Sleipnis haustið 2012

Hestamannafélagið Sleipnir og  Endurmenntun Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri hafa áhuga á að bjóða upp á námið „Reiðmaðurinn“  í reiðhöll Sleipnis haustið 2012. Þar sem hafa áhuga á að fara í þetta nám nú í haust eru vinsamlegast beðnir um að senda...

Hestamannafélagið Sleipnir og  Endurmenntun Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri hafa áhuga á að bjóða upp á námið „Reiðmaðurinn“  í reiðhöll Sleipnis haustið 2012. Þar sem hafa áhuga á að fara í þetta nám nú í haust eru vinsamlegast beðnir um að senda póst á thordisv@heimsnet.is með nafni, kennitölu og símanúmeri  fyrir 1.maí næstkomandi.

Athugið að skráningin er ekki bindandi og er einungis til að kanna hvort nægur áhugi sé til staðar svo hægt sé að bjóða upp á slíkt nám á Selfossi.

Nánari upplýsingar um námið má sjá á vefsíðu landbúnaðarháskólans www.lbhi.is