Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
13.7.2008 20:34

Dökk hlið á Landsmóti, LM tjáir sig ekki
„þetta er bara æðislegt“
-segir framkvæmdastjóri Landsmóts

Sem blaðamaður á Landsmóti hestamanna 2008 þá get ég ekki annað en hrósað viðmóti, aðstöðu og tæknimálum sem að okkur stóðu. Netsamband og öll samskipti við þann aðila sem tók að sér það vandasama verk að vera tengiliður fjölmiðla var með þvílíkum sóma að mér hreinlega féllust hendur, og ekki ofsögum sagt að létt sé að gera mér til geðs. Telma takk.

12 – 14 þúsund manns voru saman komin á þessu, „ekki get ég sagt glæsilegasta Landsmóti, en þó örugglega því fjölmennasta til þessa og á Landsmótsnefnd heiður skilið fyrir ALLT það sem gerðist innan girðingarinnar“ og endar þessi tilvitnun frá mér all svakalega. Það mun alltaf vera einhver gagnrýni á störf nefndar sem tekur að sér svo stórt verkefni eins og Landsmót er og er engin undantekning með Landsmót 2008.

Nú er liðin vika frá því að Landsmóti lauk og aðeins einn aðili hefur hafið rausn sína á því sem vel fór og slæmt (fyrir utan undirritaðan) og sagt sína skoðun. Það er mál manna að þetta Landsmót hafi tekist mjög vel en það er eins og einhverjir hjá Landsmótsnefnd séu í afneitun með það sem gerðist á tjaldsvæði mótsins.

Lúther Guðmundsson var í viðtali hjá Hestafréttum í vikunni og sagði frá raunum sínum hvað varðar skipulagsslysið sem varð á tjaldsvæði mótsins. Frá lokum þessa móts hefur fjöldi fólks haft samband við ritstjórn Hestafrétta og lýst yfir undrun sinni á því skipulagi sem átti sér stað á margumræddu tjaldsvæði. Í viðtali sem fylgir þessari frétt sem tekið var af www.RUV.is segir Samúel Örn við Jónu Fanney Friðriksdóttur framkvæmdastjóra Landsmóts á sunnudeginum (lokadegi mótsins), orðrétt „Það hefur lítið verið rætt um óróleika og næturófrið hér“ og svarar Jóna „já þetta er bara frábært, það tókst sem við ætluðum okkur“.

Ég spyr, af hverju er verið að segja ósatt beint upp í opið geðið á fólkinu sem lenti í því að fá ekki hjólhýsastæðin sín, svefninn sinn og margumrædd atriði hvað snéri að svæði hestamannafélagana þar sem dauðadrukknir og uppdópaðir unglingar hlönduðu yfir keppnishross, helltu yfir þá áfengi og öðrum ófögnuði?. Ég sjálfur þurfti að færa hjólhýsi mitt út á miðja sanda til þess að fá svefn.

Það sem vekur undrun mína er að Landsmótsnefnd hafi ekki sent frá sér opinbera afsökunarbeiðni, bæði til hins almenna áhorfenda og keppnisfólksins sem var á þessu opna tjaldsvæði. Það gæti verið svo að nefndin vilji alls ekki hefja umræðuna um þetta skipulags slys, þ.e að hafa haft tjaldsvæðið opið til þess að komast hjá því að ræða það.

Þegar Fanney sagði „þetta er æðislegt“ var hún þá að tala um allt sem gerðist innan girðingarinnar?

Öll þau viðtöl og fréttamyndir sem bárust frá mótinu í fjölmiðlum var aldrei talað um þessa dökku hlið Landsmóts 2008.

Samúel spyr að lokum " er eitthvað sem þið getið lært fyrir næsta Landsmót ?" svarar Jóna "já bara fínpússningar sem við bara vitum um".

Mín skilaboð til nefndarinnar, umræðan og viðtölin við þá aðila sem lentu í þessum ófögnuði er rétt að byrja, verið fyrri til og sendið frá ykkur tilkynningu.

Lifið heil
Daníel Ben Þorgeirsson





Til baka    






Deila
Til baka