Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
2.11.2008 00:49
Er hófapressan á villigötum?
Sigurður V.Ragnarsson skrifar

Þeir blaðamenn sem fjalla um hestamennskuna vinna oft á tíðum vanþakklátt starf  og sæta oft óréttmætri gagnrýni og þurfa því oft á tíðum að hafa harðan skráp til að standast álagið sem þessu fylgir. Þeim mun brýnna er að þeir fari varlega með sitt vald og gæti meðalhófs í efni þegar fjallað er um málefni hestamanna.

Það er mín skoðun að í flestum tilfellum þá er þetta í nokkuð góðu lagi en þegar hófapressan birti tilnefningar sínar til knapa ársins 2008  ég gat ekki orðum bundist, einkum og sér í lagi við tilnefningar á vali á    gæðingaknöpum ársins.

Þar vantar alveg klárlega tvö nöfn þá Sigurbjörn Bárðarson og  Sigurð Sigurðarson

Sigurbjörn var með 1 og 3 hest í A flokki á gæðingamóti Fáks og 2 sæti í  B flokki, á Meistaramóti Andvara vann Sigurbjörn A flokk og á Landsmóti hestamanna var Sigurbjörn með efsta hest í forkeppni og milliriðlum A flokks og vann einnig B úrslitin í  A flokki en dró þann hest út úr keppni og hann var einnig með hest í B úrslitum B flokks.

Eins og frægt er orðið þá stefndi allt í sigur hjá Sigurbirni í A flokki á Landsmótinu þegar hann var fyrir því óhappi að hesturinn reif undan sér og varð að hætta keppni. Nokkur umræða hefur orðið um þetta atvik og sitt sínum hverjum, en eitt er þó ljóst að Sigurbjörn braut engar reglur eða lög þó að eflaust sumum finnist að hann hefði átt að hætta keppni fyrr.  Það er nógu sárt fyrir Sigurbörn að sjá á eftir sigri í A flokki þó að hófapressan dragi ekki einhverjar annarlegar ályktanir  og hafni Sigurbirni í valinu á þessum forsendum en það tel ég einmitt vera og hlýtur að vera eina ástæðan sem er alveg fáranlegt.

Sigurður Sigurðarson átti alveg frábært keppnisár og er alveg sama hvar maður grípur niður hann er allstaðar í fremstu röð og tilnefndur allstaðar nema sem gæðingaknapi við skulum skoða nánar hans stöðu þar:

Hann var með efsta hest í gæðingakeppni Mána A flokki og 2.sæti í B flokki, hjá Dreyra á Akranesi var hann með efsta hross í B flokki,hjá Geysi var hann með 4 sæti í A flokki og 3 og 4 sæti í B flokki. Á meistaramóti Andvara var hann með efsta hross í B flokk og 2.sæti í A flokk. Á landsmótinu var hann með 4 sæti í úrslitum bæði í A og B flokki. Svo kemur það sem ég tel hófapressuna stranda á , Sigurður var með eftir forkeppni B flokks 2.sætið á Freyði frá Hafsteinsstöðum en fékk ekki að ríða milliriðil þar sem dýralæknir mótsins fann í munni Freyðis sár ofarlega á tungu hestsins og vildi ekki að hesturinn keppti áfram. Sigurður tók þessu alveg ótrúlega vel hafði ekki upp nein andmæli og vil ég geta þess að þetta var  lítið sár  sem fannst ekki nema við ítarlega skoðun enda var sárið horfið eftir 4-5 daga. Er það mér til efs að ástæða var til að banna keppni á hestinum, en látum það liggja á milli hluta og látum dýralækninn njóta vafans.

Það er alveg klárt í mínum huga að Sigurbirni og Sigurði er refsað af hófapressunni fyrir þessa tilvik og miðað við greinagerð þeirra um kjör á knapa ársins kemur hvergi fram að verði knapar fyrir óhappi beri að refsa þeim.

Í grein 2 um val á knapa ársins segir.” Við val á knapa ársins skal tekið tillit til árangurs á árinu sem kjörið á við um. Einnig skal tekið tillit til ástundunar, prúðmennsku, framfara og reglusemi og svo framv” Það er alveg ljóst að þessir tveir menn hafa um langt árabil verið í sérflokki í keppni á íslenskum hestum og eru búnir að vera til  fyrirmyndar bæði fyrir land og þjóð þar sem þeir hafa verið, eins og fram kemur hér að ofan þá er árangur þeirra í gæðingakeppni alveg óumdeildur því er ljóst að ofangreind óhöpp hafa ráðið niðurstöðum hófapressunnar.

Ef það á að útloka menn frá vali af þessum ástæðum er ég greindi frá hér áðan,þá erum við á hálum ís, það er ekki á valdi hófapressunnar að gerast dómari í einstökum málum sem þegar hafa verið afgreidd á réttum vettvangi. Það sem skiptir máli er að hér er um óhöpp að ræða en ekki ásetning.

Ég vil ekki gera lítið úr árangri þeirra sem eru tilnefndir í valinu knapar  ársins en töluverður hluti þeirra rifu undan skeifu í keppni nú í sumar en héldu samt áfram keppni nægir að nefna, Þórarinn Eymundsson á Jónínu frá Feti hann reif undan á Íslandsmótinu nú í sumar í töltkeppninni, Guðmundur Björgvinsson reif undan Vá frá Vesta Fíflholti í 1.fl fimmgangs á Íslandsmótinu .Sumir kynbótaknapana  rifu undan fleiri en einum hesti á Landsmótinu nú í sumar og svona mætti lengi telja. Það sem ég er að segja er að þetta getur alltaf gerst og við eigum ekki að gera meira úr svona óhöppum en efni standa til.

Að lokum vil ég óska öllum þeim sem voru tilnefndir innilega til hamingju með sinn árangur og óska þeim valfarnaðar á komandi tímum.

Það er von mín að hófapressan skoði þessi mál af sanngirni og vegi ekki að mönnum og málefnum með ósanngjörnum hætti.


 





Til baka    






Deila
Til baka