Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
12.10.2009 01:50
Drengileg viðbrögð
Pistill eftir Ragnar Tómasson

Ég fylgdist eitt sinn með fréttum í sjónvarpinu þegar sagt var frá fólki sem hafði unnið Stóra Vinninginn í happdrætti. Erfitt líf fólksins varð nú sólbjört hamingjan. “Mikið er gaman að heyra þegar öðrum gengur vel”, sagði konan. Það var og!!!

Ég hef áður rifjað upp söguna af fólkinu í Ameríku sem vann milljarða í lottói. Það var af íslenskum ættum. Það var ekki fyrr en í ljós kom að fréttin byggði á misskilningi að Íslendingar endurheimtu gleði sína!!

Hestamenn eiga sínar hetjur. Flottir og snjallir knapar töfra fram það besta í fari hvers gæðings. Fátt vita hestamenn fallegra en vel sýndan gæðing. Þessar sýningar eiga sinn stóra þátt í því að draga þúsundir erlendra gesta að landsmótum. Það er að vonum að þessir úrvalsknapar eru fyrirmyndir sem unga fólkið lítur upp til.

En það er ekki vandalaust að vera fyrirmynd. Og án þess að hafa ætlast til þess eða beðið um hlutverkið.

Fyrirmyndir þurfa sífellt að axla ábyrgð – og sífellt að vera góð fyrirmynd – annars....!

Maðurinn býr yfir þekkingu og kunnáttu til að kanna óravíddir himinhvolfsins. Það er eins og hann geti allt. En það er ekki allt sem sýnist. Ekki síst þegar kemur að sálinni. Hún er flókin. Þar hefur hver sinn djöful að draga.

Fyrir nokkrum áratugum kynntist ég ungum pilti sem ég hef alltaf dáð og geri enn. Ósjaldan fékk hann að gista á “kontórnum” í Dofra þegar hann og sonur minn komu ríðandi ofan úr Víðidal. Það var riðið út um Gufunesið og til baka upp í Víðidal í lok helgarinnar. Lífið snerist um hesta. Ungi pilturinn var alltaf flottur, glaður og kurteis. Okkur fannst gott að vita af ungu mönnunum undir okkar þaki, föstudags- og laugardagskvöld. Ekki spillti fyrir þegar þrír eða fleiri vinir bættust í hópinn. Það var nóg pláss á “kontórnum” í Dofra. Þetta voru ár sem aldrei gleymast.

Nú, tíminn leið og ungu mennirnir uxu úr grasi. Ungi vinur okkar varð einn dáðasti hestamaður landsins. Og “oftast nær” góð fyrirmynd. En alltaf traustur, glaður og góður vinur fjölskyldunnar. 

Á dögunum bað hann mig að liðsinna sér. Þó nú væri. Hlutskipti “fyrirmyndarinnar” hafði laskast.

Hann sendi frá sér einlæga og drengilega yfirlýsingu þar sem hann gekkst við agabrotum á stóru móti og baðst afsökunar. Í henni fannst mér ég þekkja aftur unga manninn sem ég kynntist svo vel fyrir rúmum 35 árum.

Göfuglyndur drengskaparmaður sem gekkst við ábyrgð sinni og reyndi hvorki að benda á flís né bjálka í auga náungans.

Varð þannig öðrum íþróttamönnum sem misstíga sig góð fyrirmynd.





Til baka    






Deila
Til baka