Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
26.10.2009 15:39
Lífið var svo einfalt
Pistill eftir Ragnar Tómasson

Honum varð aldrei orða vant gömlum vini mínum sem nú er látinn. Hann hafði skoðanir á öllu hlutum. Það bíttaði engu þó hann hefði ekkert vit á málunum. En skoðanir hafði hann – og lá ekki á þeim. Honum var mjög uppsigað við alla langskólagengna menn. Sagði að þeir væru “akademískir rugludallar”. Skoðanir þeirra þurfti því ekki að ræða frekar!

Ég vissi að vinur minn stundaði heitu pottana við Laugardalslaug. Síðar komst ég að því að þar var hann kallaður “foringinn”. Þeir hittust þar stór hópur manna kl. 7 alla morgna í einhverja áratugi. Þar var ekkert pláss fyrir efasemdarmenn. Öll mál voru afgreidd með einni setningu. Eftir það var næsti maður búinn að taka af þér “orðið”!

Ég les fjölmiðla og fylgist með umræðum. Reyni að mynda mér skoðanir á helstu þjóðmálum.
Hverjir eru kostir og gallar ESB?
Hvað með Icesave málið?
Eigum við að taka upp evru eða dollar?
Hver ber ábyrgð á Hruninu?
Hvernig á að leysa vandamál heimilanna/fyrirtækjanna?
Mér gengur ekki vel að komast að niðurstöðu. Þegar ég fylgist með Silfri Egils, Kastljósi eða umræðum frá Alþingi finnst mér ég vera kominn í Heita Pottinn þegar vinur minn “stjórnaði” umræðum.
Stundum öfunda ég hann vin minn sem ALLT vissi!
Og efaðist aldrei!
Lífið var svo dásamlega – og skemmtilega - einfalt.

Ragnar Tómasson

ragnar@samningar.is





Til baka    






Deila
Til baka