Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
29.10.2009 14:26
Sýndir stóðhestar með yfir 125 stig í aðaleinkunn

Það er endalaust hægt að velta sér uppúr ræktun, ræktunarmarkmiðum og kynbótahrossum. Smekkur manna er misjafn og ræktunarmarkmið hjá hverju búi eru einnig misjöfn eins og þau eru mörg. En ef við skoðum hið opinbera ræktunarmarkið þá miðar það að því að  rækta heilbrigðan, frjósaman og endinga góðan hest - hraustan íslenskan hest.

Sérstök ræktunarmarkmið:

Sköpulag almennt, almennt stefnt að því að rækta hina léttbyggðari gerð íslenska hestsins með mikilli áherslu á styrk, skrokkmýkt og vöðvastælta líkamsbyggingu. Sköpulagið á að stuðla að mikilli ganghæfni og eðlisgóðum höfuðburði og á sama tíma að taka mið af almennt viðurkenndum fagurfræðilegum þáttum.

Reiðhestshæfileikar almennt, almennt er stefnt að því að rækta fjölhæfan, taktfastan og öruggan, viljugan og geðprúðan hest sem fer glæsilega í reið - hinn íslenska gæðing.

Ef við skoðum 10 hæstu sýnda stóðhesta með aðaleinkunn kynbótamats frá 125-150 stig.


Fæðingarnr, nafn og uppruni.                        sköpulag, hæfileikar, aðaleinkunn
IS2001186915 Vilmundur frá Feti                                  117         127          129
IS2003188277 Tenór frá Túnsbergi                               108         129          129
IS1998187054 Gári frá Auðsholtshjáleigu                      137         120          128
IS2005187018 Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu             121         125          128
IS1997186183 Sær frá Bakkakoti                                   111         126          127
IS2004181963 Oliver frá Kvistum                                   112         127          127
IS1986186055 Orri frá Þúfu                                           122         122          126
IS2003156956 Kvistur frá Skagaströnd                         114         125          126
IS2004180601 Ársæll frá Hemlu 2                                 116          124          126
IS2005187836 Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3                       121          122          126

Þetta eru engar smá tölur og greinilegt að íslenskir hrossaræktendur eru á réttri leið. Jafnir með 129 stig í aðaleinkunn eru þeir Vilmundur frá Feti og Tenór frá Túnsbergi.

Hæsta stig fyrir sköpulag er 137 stig og er það byggingabomban Gári frá Auðsholtshjáleigu. Gári er með þriðju hæstu aðaleinkunnina.

Hæsta stig fyrir hæfileika er 129 stig en það er hin ungi og efnilegi Tenór frá Túnsbergi. Hann er eins og fram kom hér að ofan jafn Vilmundi frá Feti með 129 stig í aðaleinkunn.





Til baka    






Deila
Til baka