| Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - |
|
8.11.2009 23:12 Mig vantar gull! Pistill eftir Ragnar Tómasson
Það var uppskeruhátíð í gær. Hefði vel getað hugsað mér að vera þar. Á uppskeruhátíðinni hittir maður stórfjölskylduna, íslenska hestamenn. Þegar stór hópur fólks með sameiginleg áhugamál hittist á svona mannfagnaði myndast sterkir straumar, sem veita gleði og ánægju.
Margir úrvalsknapar fengu verðskuldaðar viðurkenningar. Þeim skulu hér færðar hamingjuóskir fyrir glæsilega frammistöðu á liðnu ári. Ég freistast til þess að lýsa sérstakri ánægju minni með viðurkenningu Sigurðar Sigurðarsonar sem Knapi ársins 2009. Það er alltaf gaman að fylgjast með Sigga Sig. Þessari kempu sem sameinar svo fallega að vera frábær hestamaður, einstakur keppnismaður og um leið flottur fulltrúi hestamennskunnar, inná við og útá við. Það væri fátæklegra um að litast í röðum hestamanna ef enginn væri þar Sigurður Sigurðarson. Það er annars athyglisvert hvað hestamenn eru orðnir meðvitaðir um stórfjölskyldu sína. Það er sífellt að fjölga í röðum hestamanna og þeir eru að hittast æ oftar. Við hestamenn erum æ oftar minntir á það hvað hestamennskan er orðin stór hluti af lífi okkar. Stundum langar mig að eiga nokkrar viðurkenningar í vasanum, úr skíragulli, og úthluta þeim. Við áttum ekki nema einn Flosa Ólafsson, leikara, en við eigum fjölmarga bráðskemmtilega hestamenn sem alltaf er gaman að hitta. Nokkur gull þar. Flest hestamannafélög eru svo lánsöm að eiga félagsmálatröll sem snara upp, með félögum sínum, eins og einni reiðhöll - eða nýjum keppnisvelli – eða félagsheimili. Meira gull. Ef ekki styttu úr gulli. Við eigum hugsjónafólk sem skipuleggur æskulýðsstarfið í sínu félagi. Gull og meira gull. Við megum líka hugsa hlýlega til þeirra kaupmanna sem leggja sig fram við að fá sífellt betri vörur á sífellt lægra verði. Ég læt þá fá medalíu úr gulli - með afslætti. Að ógleymdum ritstjórum hestafréttamiðlanna sem sjá okkur fyrir andlegu fóðri árið um kring. Hvert sem litið er má sjá spor afreksmanna sem gera okkur lífið skemmtilegra.
| Til baka | ||||