| Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - |
|
24.12.2009 10:49 Togum ekki í eyrun á fólki!! Pistill eftir Ragnar Tómasson
Veröldin getur verið stór. En sjálf lifum við flest í agnarsmáum heimi. Umkringdir okkar nánustu, vinum og kunningjum. Þeim sömu og við dveljum með eða hugsum til á þessari jólahátíð. Þetta er okkar bakland í lífinu.
Konan var að taka til í geymslunni fyrir jólin. Úr kössum og skúffum dró hún fram gamlar ljósmyndir og sendibréf. Áratuga gamalt, og löngu gleymt bréf frá dóttur okkar, þá 8 – 10 ára, kom í dagsljósið. Ég birti bréfið með hennar leyfi. “Til mömmu. Kostulegt bréf finnst okkur í dag. En þó við, og dóttir okkar, höfum hlegið dátt við lestur bréfsins þá var höfundinum ekki hlátur í huga um árið. Enda mikil dramatík í textanum. Blaðamaður úr hópi hestamanna sagði eitt sinn frá dvöl sinni í New York um jólin. Á jóladagskvöld gekk hann fram á fjóra útigangsmenn sem sátu saman í hnipri við húsvegg og spjölluðu. Þeir áttu hvergi höfði sínu að halla. Veitingar voru af skornum skammti.. Blaðamaðurinn brá sér inn í nálæga verslun (alltaf opið í New York!) og keypti kippu af bjór og gaf þeim. Þetta var nákvæmlega það sem þá vantaði! Þeir brostu út undir eyru. Þeir föðmuðu hann að sér. Það var búið að “bjarga” jólakvöldinu. Það þurfti ekki meira til. Og blaðamanninum tókst að gera það sem göfugast er allra verka – að geta glatt aðra – og sjálfan sig mest.
Og fyrir alla muni: Togum ekki í eyrun á fólki!! Gleðilega hátíð kæru lesendur. Ragnar Tómasson | Til baka | ||||