Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
20.1.2010 10:00
Gleðin er góð
Pistil eftir Ragnar Tómasson

Það er gaman að ganga út í daginn í fallegu veðri. Sem ungur maður í skóla fór ég í söluferðir út á land. Ég seldi alltaf vel í sólskini. Allt nema stígvél og regngalla! Gamall fjölskylduvinur, löngu látinn, hló sannkölluðum tröllahlátri.

Faðir minn rifjaði stundum upp þegar þeir snæddu á virðulegum matsölustað í London. Það var setið við hvert borð. Ákveðið atvik varð til þess að vinurinn fór að hlæja – sínum tröllahlátri! Á einu augabragði sprakk salurinn úr hlátri. Án þess að vita hvers vegna.

  “Jóhannes á fóðurbílnum” er þekktur fyrir hlátursrokur sínar. Kemur stundum í viðtöl í útvarpinu og hlær og hlær – og hlustendur hlæja með.

Þekktur dægurlagahöfundur gaf út sjálfsævisögu sína um síðustu jól. Þar er því lýst hvernig börnin voru sem lömuð af ótta þegar pabbinn var heima. Hann var svo skapvondur og harðskeyttur að þeim stóð ógn af. 

Sá sem brosir breitt er sagður vera “eitt sólskinsbros”. Því brosið er hlýtt eins og sólin. Sá sem brosir fær bros til baka. Okkur líður betur þegar við mætum brosi. Brosið (og gleðin) smita.

En það er ekki aðeins gleðin sem smitar. Ólundin gerir það líka – því er nú ver. Það væri sök sér ef ólundin hitti aðeins þann fúla!

Sálarlífið er flókið og okkur ofviða að skilja. Við höfum mikil áhrif á það hvernig öðrum líður.
Og eitt er víst: Gleðin er góð.

Ragnar Tómasson

ragnar@samningar.is





Til baka    






Deila
Til baka