Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
31.1.2010 23:25
Horft á eftir konum
Pistill eftir Ragnar Tómasson

Ég hugsa oft til þess hvílík forréttindi það eru að vera með hestadellu og geta stundað hana. Við þurfum öll að eiga okkur áhugamál. Við lifum í tveimur heimum. Annars vegar í okkar víðu veröld sem við deilum með öðrum. Þar sem við tökum þátt í að móta okkar umhverfi, fylgjumst með fjölmiðlum og ræðum um útrásina, handboltann og kreppuna. Ekki alltaf skemmtileg veröld.

 

Hin veröldin er sú sem við sköpum okkur sjálf. Við lesum bækur, hlustum á tónlist eða stundum hestamennsku.

Fjölfróður hestamaður líkti hestamennskunni við píanóleik. Fólk verður aldrei fullnuma þó það læri árum saman.

Hestamennskan er einnig íþrótt sem aldrei lærist til fulls. Þess vegna meðal annars geta hestamenn rætt um kosti, galla og vandamál sinna hrossa – og annarra - út í eitt.

Hestamennskan er afþreying og færir okkur skjól frá erli hversdagsins. Í hesthúsinu er auðvelt að gleyma bæði stað og stund. Áhyggjur víkja og hugurinn hvílist. 

Hestamennskan tengir fólk böndum landshluta á milli og þvert á höf og lönd. Hún á sína eigin fjölskyldu – stórfjölskyldu hestamanna, sem hittist á Landsmótum og Heimsmeistaramótum. Þar heilsast menn á ýmsum tungumálum, með bros á vör. Hafa kannski ekki sést síðan á síðasta LM/HM.

Hestamennskan er lífsstíll sem við höfum valið okkur. Við erum alsæl meðan við getum stundað okkar hestamennsku. Átt okkar drauma. Drauma um sigra, drauma um folöldin sem fæðast að sumri, hestaferðir um landið, folann sem við erum að temja. 

Vinur minn Gulli heitinn Bergmann, kaupmaður í Karnabæ þótti hafa auga fyrir kvenlegri fegurð. Í fimmtugsafmæli hans hélt vinur hans tölu. Sagði að Gulli sneri sér ennþá við þegar hann sæi fallega konu á götu. En nú myndi hann ekkert af hverju!

Enginn hestamaður, með sjón í lagi, verður svo gamall að hann hægi ekki á sér þegar hann sér flottan knapa á fallegum hesti.
Og hann þarf ekki að muna af hverju!





Til baka    






Deila
Til baka