6.2.2010 20:48
Hvar skal halda Landsmót 2012?
Pistill eftir Einar Gíslason
Nú birtast okkur greinar og álit á því hvar landsmót hestamanna skuli haldin og sitt sýnist hverjum. Hæst hafa þeir er ekki vilja breyta þeirri sjálfsögðu hefð að halda þau aðeins á tveim stöðum á landinu þ.e.a.s á Gaddstaðaflötum og Vindheimamelum og láta þar að leiðandi þessa tvo staði njóta þess að fá þá fjármuni og uppbyggingu er fylgir því að halda landsmót. Sjálfur fór ég á landsmótið í Reykjavík 2000 og líkaði vel þó svo að ég missti af þeim útihátíðafíling sem þeim á Hellu tókst að skapa nú á síðasta landsmóti er haldið var þar. Þar á ég við umferðarteppur, vatnslausa kamra og gæslulaus tjaldsvæði sem fylltust af djammandi fólki og unglingum er lét sér dagskrá mótsins lítið varða enda var nóttin þeirra tími rétt eins og í Atlavík forðum nema þar var gæsla. Margir kenndu nálægðinni við borgina um þetta ástand en allavega var þetta ekki svona í sjálfri borginni á LM 2000. Það að ætla sér að einoka staðarval LM og þá fjármuni og ferðamannastraum sem því fylgir er ósvífið og ekki í anda LH þar sem markmiðið er að byggja upp aðstöðu og öflugt starf hestamennsku á sem flestum stöðum á landinu. Ef þau félög sem stóðu að síðasta LM á Gaddstaðaflötum eiga í fjárhagsvanda þá verður hann ekki leystur á kostnað annara staða á landinu sem eru fullfærir um að halda landsmót og gera það vel. Forkólfar á suðurlandi geysast fram á ritvöllin hlaðnir rökum um að Reykjavík sé óhæfur landsmótsstaður og sumir eru svo hrokafullir að segja að þeir láti ekki bjóða sér þetta. Þeir gleyma því að landsmót eru ekki sjálfsögð eign þeirra sem öðrum kemur ekki við. Öll þessi rök eru tilbúin af þeim er hagnast á því að halda landsmót í sinni heimabyggð og vilja því ekki missa spón úr aski sínum með því að leyfa öðrum stöðum að komast að.
Rök eins og dýravelferð, hesthúspláss og flutningskostnaður eru tínd til, dýravelferð, takið eftir, hver gleymir ekki flugeldatertunum sem voru sprengdar innan um menn og skepnur á Hellu og er ekki sanngjart að Reykvíkingar fái af og til að njóta lægri flutninga fyrir hross sín rétt eins og sunnlendingar þegar mótið er á Hellu. Þó tekur steinin úr þegar menn eru farnir að kvarta yfir því að geta ekki sungið í góðra vina hópi í Víðidalnum og nota það sem rök fyrir vali á Landsmótsstað. Að halda því fram að ekki megi halda landsmót á heimavelli fjölmennasta hestamannafélags landsins er í raun óskiljanleg eigingirni þeirra félaga er staðið hafa að landsmótshaldi á Gaddstaðaflötum og Vindheimamelum, þeir hanga eins og hundar á roði á því að fá að einoka stærsta viðburð hestamennsku í landinu um ókomna framtíð og bera fyrir sig þau rök að ekki borgi sig að leggja í þann kostnað að gera fleiri svæði hæf til að koma að landsmótshaldi. Þá gleymist gjarnan að nú þegar eru 4 staðir hæfir þó allir þeirra þurfi viðhald og nýir tímar kalli á framþróun. Hverjum dytti það í hug að binda Landsmót UMFÍ við sama staðinn? Allir staðir hafa sína kosti og galla og um leið sinn sjarma, það ber að virða og koma að þessu staðarvali á félagslegum grunni en ekki út frá hagsmunum einstakra hópa eða félaga. Að lokum vil ég hvetja alla þá er málið varðar að hræðast ekki breytingar því landsmót í Reykjavík er góður kostur sem ekki er hægt að sniðganga um ókomna framtíð
Einar Gíslason Brúnum Eyjafjarðarsveit
|