| Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - |
|
8.2.2010 17:24 Eitthvað fyrir alla Meistaradeild VÍS
Fyrir þá sem mæta á mót Meistaradeildar VÍS í Ölfushöllinni í vetur verður ýmislegt sem gleður augað en það er ekki eingöngu það sem gestirnir geta fengið í höllinni í vetur. Veitingarnar eru ekki af verri endanum. Í vetur verða pizzur búnar til frá grunni á staðnum, heitar og kaldar samlokur, kaffi, meðlæti, gos og að sjálfsögðu eitthvað kalt til að kyngja þessum dásemdum niður með. Það er Linda Björgvinsdóttir sem stendur vaktina í veitingasölunni ásamt góðum hóp af fólki. En í pizzabaksturinn dugði ekkert minna en bakari af Hróa Hetti með margra ára reynslu í bransanum. | Til baka | ||||