Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
16.2.2010 15:40
Tóm della
Pistill eftir Ragnar Tómasson

Það blundar í okkur flestum ótti við að gleymast. Okkur hugnast ekki sá möguleiki að tilvera okkar skipti engan máli - nema okkur sjálf. Í okkar hröðu veröld hefur margt veraldargóssið reynst fánýtt. En það er mikilsvert að gleyma ekki því sem bætti líf okkar og umhverfi.

 

Ég byrjaði mína hestamennsku rétt upp úr 1970. Umhverfi og aðbúnaður okkar hestamanna hefur tekið slíkum breytingum að erfitt – og gagnslítið – er að reyna að brjóta það til mergjar. Mig langar þó að stikla á nokkrum mikilvægum atriðum.

Vetrarstarf okkar hér á suð-vesturhorninu hefst að jafnaði með keppni í Meistaradeild VÍS í Ölfushöllinni. Síðasta fimmtudagskvöld var Ölfushöllin pakkfull. Um tuttugu flottir knapar þreytu keppni á glæsilegum gæðingum sínum. Hálfum mánuði áður hafði smalakeppnin náð að fylla höllina. Og enginn varð fyrir vonbrigðum. Mikill hraði, mikið fjör.

Ég man hér um árið að mér fannst Örn Karlsson vera bjartsýnn og stórhuga á sínum tíma þegar hann kom meistaradeildinna af stað. Er ekki frá því að mér hafi fundist þetta vera hálfvonlaust verkefni. En kappinn Örn Karlsson gafst aldrei upp heldur hélt sínu striki, ár eftir ár. Í dag hlýtur Meistaradeildin að teljast vera komin til að vera. Það er sífellt meiri ásókn í að komast í deildina, menn mæta með sífellt betri hross og aðsókn er sífellt betri.

Kannski var heldur “ekkert vit” í að byggja þetta glæsilega mannvirki í Ölfusinu. En hestamönnum til óblandinnar gleði stendur húsið þarna og hefur náð að marka sín djúpu spor í þróun íslenskrar hestamennsku.
Örn Karlsson fær rós í hnappagatið frá íslenskum hestamönnum.

Reiðhöllin í Víðidal þótti feiknarlegt mannvirki og þykir enn. Það gjörbreytti allri hugsun og aðstöðu íslenskra hestamanna. Fyrir byggingunni fór fremstur í flokki ljúfmennið og málafylgjumaðurinn Sigurður Líndal frá Lækjarmóti.

Ef ég man rétt átti Leifur Jóhannesson, þá forstöðumaður Stofnlánadeildar Landbúnaðarins, sinn mikilvæga þátt í að stofnlánadeildin veitti lán til verksins. Eins og oft vill verða með tímamótaverk var byggingarkostnaðurinn full hár. Það þurfti að afskrifa lán. Og hvorki í fyrsta né síðasta sinn. Og sjaldan af eins góðu tilefni því reiðhöllin var komin og stendur enn!
Sigurður Líndal frá Lækjarmóti og Leifur Jóhannesson fá sitthverja rósina í sín hnappagöt.
Ég á kannski síðar eftir að geta merkra frumkvöðla í röðum íslenskra hestamanna.
Við erum daglega að njóta góðs af framtaki og áræði þeirra. Manni óar stundum við því hvað það fennir fljótt í sporin. En það gerir okkur aðeins gott að staldra stundum við og rifja upp sögu atburðanna.
Af þeirri sögu má margt læra. Stórvirki krefjast oft fórna. En það er gott til þess að vita að þau bæti líf okkar yndi um ókomin ár.

Ég hef notið þess að hafa ferðast nokkuð um heiminn. Í skipulögðum ferðum er athyglisvert að merkustu mannvirkin og um leið þau sem þjóðirnar eru hvað stoltastar af voru á sínum tíma “tóm della”.





Til baka    






Deila
Til baka