Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
9.3.2010 21:27
Stofnunfudur hagsmunafélags hestamanna

Miðvikudagskvöldið 10.mars kl 20 ætla hestamenn og hestaáhugamenn stofna með sér  félagsskap, í Fólkvangi á Kjalarnesi, til að vinna að hagsmunamálum hestamanna á Kjalarnesi. Markmið þessa félags verður að vinna að hagsmunum hestamennskunnar á Kjalarnesi, m.a. með því að stuðla að reiðvegagerð, uppbyggingu hesthúsahverfis og útvega aðgengilega sumarbeit.

Nokkrir hestaáhugamenn hafa ákveðið að boða til stofnfundarins. Eins og fyrr segir eru ákveðinn tilgangur með félaginu. Ekki er ætlunin að stofna eiginlegt hestamannafélag með aðild að íþróttahreyfingunni, einungis hagsmunafélag til að vinna að úrlausn ýmissa mála svo hægt verði að stunda hestamennsku hér á Kjalarnesinu.
www.kjalarnes.is




Til baka    






Deila
Til baka