Nćsta keppnisgrein í Meistaradeild VÍS er gćđingafimi. Keppnin verđur á morgun fimmtudag í Ölfushöllinni og hefst keppni klukkan 19:30. Gćđingafimin er mikil áskorun fyrir knapana. Ţar eru allir ţćttir dćmdir sérstaklega og síđan heildarútlit sýningarinnar.
Ţađ sem dómararnir horfa međal annars á er hversu margar og erfiđar ćfingar pariđ gerir og hvernig ţćr eru framkvćmdar, hvernig ćfingarnar blandast viđ gangtegundir, flćđi sýningarinnar, fjölhćfni og styrkleiki gangtegunda. Knapar ţurfa ađ sýna ađ lágmarki ţrjár gangtegundir og fimm fimićfingar og er einungis ein skyldućfing, en hún er opinn sniđgangur á tölti. Lengd sýningar má vera ađ hámarki ţrjár og hálf mínúta.
Ţađ var Jakob S. Sigurđsson, Frumherja, sem sigrađi greinina í fyrra á stóđhestinum Auđ frá Lundum. Jakob mćtir nú á nýjum hesti Blć frá Hesti.
Viđar Ingólfsson, Frumherja, sigrađi greinina 2008 á Tuma frá Stóra-Hofi og eru ţeir félagar skráđir til leiks núna. Sigurđur Sigurđarson, Lýsi, sem stendur efstur í einstaklingskeppninni mćtir međ glćsihryssuna Kjarnorku frá Kálfholti. Valdimar Bergstađ, Málning, verđur á Leikni frá Vakurstöđum en ţeir félagar enduđu í öđru sćti í fyrra. Hulda Gústafsdóttir, Árbakki/Hestvit, kemur međ Kjuđa frá Kirkjuferjuhjáleigu en ţau voru í úrslitum í greininni í fyrra. Annar úrslitaknapi frá ţví í fyrra Sigurbjörn Bárđarson, Lífland, mćtir međ nýjan hest Jarl frá Miđ-Fossum en ţeir félagar voru í A-úrslitum í slaktaumatölti um daginn.
Guđmundur Björgvinsson, Top Reiter, mćtir á Hljóm frá Höfđabakka en ţeir félagar voru í A-úrslitum í fjórgangi um daginn. Ţórdís Erla Gunnarsdóttir, Auđsholtshjáleiga, mćtir međ Ösp frá Enni en ţćr stöllur urđu í öđru sćti í slaktaumatöltinu.
Miđađ viđ ţá gćđinga sem skráđir eru til leiks má gera ráđ fyrir mörgum stórglćsilegum sýningum annađ kvöld. Verđ á ađgöngumiđa er 1.500 krónur og 500 krónur fyrir 12 ára og yngri og verđa miđar seldir viđ innganginn annađ kvöld.
Međfylgjandi eru ráslistar í gćđingafimi:
Nr Knapi Liđ Hestur
1 Sigurbjörn Bárđarson Lífland Jarl frá Miđ-Fossum
2 Sigurđur V. Matthíasson Málning Kall frá Dalvík
3 Valdimar Bergstađ Málning Leiknir frá Vakurstöđum
4 Hinrik Bragason Árbakki / Hestvit Náttar frá Ţorláksstöđum
5 Daníel Jónsson Top Reiter
6 Bylgja Gauksdóttir Auđsholtshjáleiga Leiftur frá Búđardal
7 Lena Zielinski Lýsi Gola frá Ţjórsárbakka
8 Ćvar Örn Guđjónsson Lífland Tónn frá Melkoti
9 Ţorvaldur Á. Ţorvaldsson Top Reiter Gola frá Prestsbakka
10 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Hestvit Kjuđi frá Kirkjuferjuhjáleigu
11 Jakob S. Sigurđsson Frumherji Blćr frá Hesti
12 Ragnar Tómasson Lífland Brimill frá Ţúfu
13 Viđar Ingólfsson Frumherji Tumi frá Stóra-Hofi
14 Sigurđur Sigurđarson Lýsi Kjarnorka frá Kálfholti
15 Ţórdís Erla Gunnarsdóttir Auđsholtshjáleiga Ösp frá Enni
16 Guđmundur Björgvinsson Top Reiter Hljómur frá Höfđabakka
17 Eyjólfur Ţorsteinsson Málning Ósk frá Ţingnesi
18 Artemisia Bertus Auđsholtshjáleiga Hugsun frá Vatnsenda
19 Ólafur Ásgeirsson Frumherji Jódís frá Ferjubakka
20 Teitur Árnason Árbakki / Hestvit Naskur frá Búlandi
21 Halldór Guđjónsson Lýsi Baldvin frá Stangarholti