11.3.2010 22:58
Sigurvegarar kvöldsins Viðar og Tumi
MDV
 |
|
|
Þá er keppni lokið í gæðingafimi í Meistaradeild VÍS. Það var hinn knái knapi Viðar Ingólfsson, Frumherja, á Tuma frá Stóra-Hofi sem sigraði með einkunnina 7,87. Með þessum sigri skaust Viðar á toppinn í einstaklingskeppninni. Meðfylgjandi eru niðurstöður kvöldsins:
Viðar Ingólfsson, Frumherji, Tumi frá Stóra-Hofi, 7,87 Sigurbjörn Bárðarson, Lífland, Jarl frá Mið-Fossum, 7,55 Jakob S. Sigurðsson, Frumherji, Blær frá Hesti, 7,34 Þorvaldur Árni Þorvaldsson, Top Reiter, Gola frá Prestsbakka, 7,33 Valdimar Bergstað, Málning, Leiknir frá Vakurstöðum, 7,21 Þórdís Erla Gunnarsdóttir, Auðsholtshjáleiga, Ösp frá Enni, 7,21 Hulda Gústafsdóttir, Árbakki/Hestvit, Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu, 7,03 Halldór Guðjónsson, Lýsi, Baldvin frá Stangarholti, 6,93 Sigurður Vignir Matthíasson, Málning, Kall frá Dalvík, 6,50 Artemisia Bertus, Auðsholtshjáleiga, Flugar frá Litla-Garði, 6,13
Gæðingafimin er óumdeilanlega mest krefjandi grein Meistaradeildar, ekki einungis fyrir keppendur, heldur einnig fyrir dómara og ekki síst flókin fyrir áhorfendur, sem oft eiga erfitt með að skilja samsetningu einkunna. En skemmtunin er sannarlega fyrir hendi. Frábærir hestar og skemmtilega samsettar sýningar. Dæmt er fyrir gangtegundir og flæði annars vegar og æfingar og fjölhæfni hins vegar. Misræmi gat verið töluvert, enda kannski ekki við öðru að búast þar sem reynsla dómara er nánast engin í þessari grein og þar af leiðandi erfitt að samræma áherslur að einhverju ráði.
Hnökrar voru algengar í sýningum sem voru sannarlega misgóðar, auðvelt er að missa taktinn þar sem misheppnaðar æfingar og gangtegundir eru dýrkeyptar. Í gæðingafimi er nefnilega allt dæmt, og misheppnað atriði getur dregið þig niður á fleiri en einum stað í einkunnagjöfinni. Almennt voru sýningar betri í úrslitum en þar hefst ný keppni, og allt galopið. Valdimar Bergstað átti ekki góða sýningu í forkeppni miðað við það sem þeir félagar hafa áður gert, en þeir réttu vel úr kútnum í úrslitum og voru greinilega búnir að stilla saman strengi. Þórdís Erla Gunnarsdóttir og Ösp frá Enni áttu mjög góða sýningu. Þær stöllur eru sannarlega glæsilegt par, reiðmennskan fáguð og átakalaus. Sigurbjörn Bárðarson er enginn nýgræðingur í greininni og þeir Jarl frá Mið-Fossum fóru á kostum í úrslitum og klifruðu alla leið í annað sætið. Jakob Sigurðsson sem sigraði greinina í fyrra á klárhestinum Auð frá Lundum stillti upp alhliða hesti að þessu sinni sem greinilega er með klárganginn á hreinu.
Stóðhesturinn Blær frá Hesti er kraftmikill gæðingur, flugrúmur og þeir áttu frábæra sýningu þrátt fyrir að hafa ekki verið með þeim bestu í æfingum. Það vakti sérstaklega athygli þegar hann fékk Blæ til að brokka við slakan taum í miðri sýningu sem sýnir ótrúlegt jafnvægi í sýningu sem annars einkenndist af krafti og afköstum. Jakob og Blær höfnuðu í þriðja sæti. Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Viðar Ingólfsson voru jafnir eftir forkeppni en Þorvaldur sýndi glæsihryssuna Golu frá Prestsbakka. Þeir Þorvaldur Árni hafa lengi unnið í nánu samstarfi og ótrúlega oft hafa þeir eldað grátt silfur saman og skipt á milli sín sigrum.
Gola frá Prestsbakka er dóttir Rökkva frá Hárlaugsstöðum sem sigraði þessa grein árið 2007, Gola og Þorri áttu frábæra sýningu en það dugði ekki til, þeir enduðu í fjórða sætinu. Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi fá hárin sannarlega til að rísa, þeir félagar orðnir ótrúlega samhæfðir og óhætt að fullyrða að Tumi batnar með hverju árinu. Spænska sporið gerði punktinn yfir i-ið í annars frábærri sýningu og þegar orðið Gæðingafimi ber á góma, er ekki annað hægt en að sjá Tuma fyrir sér, hann sameinar það sem keppnisgreinin stendur fyrir, glæsilegan þaulþjálfaðan íslenskan gæðing og þeir félagar vel að sigrinum komnir.
|