| 12.4.2010 23:56 Sigurbjörn tryggir stöðu sína ![]() Með sigri sínum í 150m skeiði og fjórða sæti í gæðingaskeiði hefur Sigurbjörn Bárðarson, Lífland, heldur betur styrkt stöðu sína á toppnum í einstaklingskeppninni. Hann er nú kominn með 50 stig og er ekki hægt að segja annað en að hann sé kominn með aðra hendi á sigur annað árið í röð. Lesa meira... |
| 9.10.2009 11:06 Umgengni við hesta Fróðleiksmolar ![]() Nú til dags er tilgangurinn með samskiptum manns og hests bæði gagn og gaman. Þess vegna þarf í allri umgengi við hestinn að hafa eðli hans í huga við ólíkar aðstæður. Geti hestur t.d ekki flúið hugsanlega hættu þá reynir hann ef til vill að verja sig. Lesa meira... |
| 2.10.2009 11:15 Hesthúsið og umhverfi hestsins Fróðleiksmolar ![]() Hesturinn þarf oft að eyða miklum tíma í hesthúsinu hér á Íslandi sérstaklega yfir vetrartímann. Hesthúsið er hans heimili og það þarf að vera hreint, bjart, þurrt og laust við slysagildrur. Hesturinn getur ekki sjálfur ákveðið hvernig umhverfi hans er og því er mikilvægt að fylgjast með að honum líði vel, hann sé fóðraður reglulega, hafi alltaf aðgang að vatni og að það sé þurrt og þokkalegt í stíunni hans. Lesa meira... |
| 23.9.2009 12:19 Taumhald Fróðleiksmolar ![]() Hendur knapans og taumhald skiptir, eins og ásetan, miklu máli þegar kemur að samspili við hestinn og nákvæmari og öruggari stjórn hans. Munnurinn er viðkvæmasti hluti hestsins og auðvelt að meiða hann og gera ónæman með röngu taumhaldi. Lesa meira... |
| 20.9.2009 13:54 Líkamsbeiting, jafnvægi og einbeiting knapa Fróðleiksmolar ![]() Alveg eins og rétt öndun og jákvætt hugarfar eru forsendur þess að ná árangursríku sambandi við hestinn þá er rétt líkamsbeiting það líka. Knapinn þarf að finna jafnvægi sitt á baki hestsins til þess að geta fylgt hreyfingum hans af næmni og öryggi. Ef knapinn veit hvar þyngdarpunktur hans er á hestbaki þá fylgir margt jákvætt í kjölfarið, s.s. betri áseta og líkamsbeiting. Þyngdarpunkturinn er á milli nafla og baks.
Lesa meira... |
| 16.9.2009 08:07 Eiginleikar og sérkenni íslenska hestsins Fróðleiksmolar Margvísleg atriði skilja íslenska hestakynið frá öðrum og mikilvægt er að gera sér grein fyrir hverjir þessir þættir eru. Þar má meðal annars nefna fimm gangtegundir sem allar eru álitnar eftirsóknarverðar og þjálfaðar markvisst þegar hesturinn er notaður. Jafnframt má benda á mjög víðtæk ræktunarmarkmið fyrir kynið þar sem ræktunargripir eru valdir með tilliti til margra þátta, s.s. geðslags, ganghæfileika, útlits og fjölhæfni. Lesa meira... |
| 15.9.2009 18:14 Viðhorf manns og hests Fróðleiksmolar Nú verður fjallað um það hvernig maðurinn getur betur lært að skilja skapgerð og atferli hesta og nýtt sér þá þekkingu við tamningu og þjálfun þeirra. Líkt og áður hefur komið fram er hesturinn hópdýr sem sækist eftir að hafa leiðtoga sem hann getur virt og treyst. Lesa meira... |
| 14.9.2009 20:39 Áreiti, svörun, afleiðing Fróðleiksmolar ![]() Hesturinn lærir fyrst og fremst í gegnum afleiðingar gerða sinna samkvæmt keðjunni: Lesa meira...Áreiti > svörun > afleiðing Eins og fram hefur komið þá bregst hesturinn eðlislægt við áreiti frá manninum, hann hugsar ekki með sér að í dag ætli hann að vera óþekkur, heldur bregst hann rökrétt við því áreiti sem hann verður fyrir, miðað við sína meðfæddu eiginleika. |
| 21.4.2009 15:40 Hafa skal það er sannara reynist Bréf eftir Hólmgeir Valdemarsson ![]() Hestafréttum barst bréf frá Hólmgeiri Valdemarssyni, en í bréfinu er Hólmgeir að lýsa óánægju sinni á skrifum Jens Einarssonar á www.seisei.is um nafnagift Top Reiter-hallarinnar sem nýlega var vígð fyrir norðan. Jens Einarsson er okkur hestamönnum vel kunnur fyrir frábæra fréttamennsku og góðar greina. Hér fyrir neðan er umrætt bréf. Lesa meira... |
| 21.12.2008 19:36 Hvað er rétt söfnun? Emanon bloggar ![]() Söfnun er hugtak, eða ferli sem aldrei er hægt að hugsa sem upphaf, endalok né eitthvert augnablik. Söfnun er á meðal margra hugsanlegra samheita um klassíska reiðmennsku. Klassísk reiðmennska sækir alltaf í að auka burð afturfóta, í gegnum hinar fjölmörgu æfingar. Söfnun er eins og allt í réttri þjálfun, ýmist aukin eða minnkuð stig af stigi, verður að vera byggð á ítarlegri þekkingu knapans til þess að árangur eigi að nást. Lesa meira... |
| 11.12.2008 00:18 Mikið var gott að hann var gamall en ekki nýr Hörður á Kríunni bloggar ![]() Mitt fyrsta verk í lok síðustu vaktatarnar og fjögurra daga frítarnar framundan var að taka hrossin á hús. Fríið ætlaði ég að nota til að járna öll tryppin mín átta talsins til að geta byrjað að þjálfa þau Lesa meira... |
| 9.12.2008 21:14 Yfirlína/söfnun Emanon bloggar ![]() Þjálfun hefur áhrif á uppbyggingu helstu vöðva og hvernig þeir vinna saman, þess vegna verður knapinn að hafa þekkingu á þeim. Forsenda fyrir réttri yfirlínu er að hann sé alveg spennu og stífnislaus. Lesa meira... |
| 4.12.2008 09:39 Hvað er yfirlína? Emanon bloggar ![]() Yfirlína er ímynduð lína sem nær frá hnakka og aftur að hæklum. Hægt er að ímynda sér línu dregna frá kverkinni niður hálsinn að framanverðu og undir kvið aftur að nára og kalla þá línu undirlínu. Hestar geta gengið í mjög mismunandi yfirlínu. Svo sem hvelfdri, fattri eða beinni. Lesa meira... |
| 3.12.2008 16:27 Stólaáseta Emanon bloggar ![]() Núna ætla ég að fjalla ýtarlega um stólaásetu, orsök og galla hennar. Stólaáseta er kölluð þegar sæti knapans ýtist aftur úr dýpsta punkti sætisins og aftur að stéli hnakksins. Mjaðmagrindin fellur aftur og sætisvöðvarnir beita sér rangt og eru í slæmri aðstöðu til að styðja við bak knapans. Lesa meira... |
| 25.11.2008 23:01 Hvert er mikilvægi réttrar ásetu? Emanon bloggar ![]() Ég hef kennt ungum sem öldnum reiðmennsku, og hefur það gengið misvel í gegnum tíðina þar sem það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Sjálf hef ég menntað mig í hestafræðum og reiðmennsku. Farið úr áhugamanna reiðmennsku yfir í atvinnureiðmennsku. Mig langar mikið að koma á framfæri mikilvægi réttrar ásetu og ryðja af stað vangaveltum. Lesa meira... |
| 1.11.2008 09:15 Lífið er yndislegt Daníel Ben Bloggar ![]() Á þessum síðustu og verstu tímum vill óttinn grípa fólk heljartökum, bankarnir fara á hausinn, fólkið tapar aurum, íbúðar og bílalán hækka meira en góðu hófi gegnir. Maður stendur sig að því í þessari kreppu að kvarta eilítið um þetta kreppudót allt saman, jú jú bíllinn komin í 7.200.000 keypti hann fyrir ári á 6.000.000 afborganir voru um 70.000 þúsund, nú komnar í 170.000 þúsund á mánuði. Lesa meira... |
| 22.10.2008 14:44 Skítt með kerfið? Daníel Ben Bloggar ![]() Furðufuglinn, alheimssnillingurinn og fyrrverandi ritstjóri Eiðfaxa, Jónas Kristjánsson hvetur fólk til að flýja land á bloggi sínu og fer þar hamförum um Davíð & Co og þá er stjórna þessu landi okkar. Jónas hvetur einnig fólk til að borga ekki af húsum sínum, bílum og bankalánum og hreinlega gefa skít í íslenskt þjóðfélag og halda í víking til norðurlanda. Lesa meira... |
| 19.10.2008 11:31 Sesar Bank in Iceland Daníel Ben Bloggar ![]() Samkvæmt vefritinu www. Kazakhstan/nonews.kz er athafnarmaðurinn Kóki Top Reiter Ólason á leið til landsins til að bjarga íslensku þjóðinni úr þeim efnahagserfiðleikum sem hún á við að etja. „Það þarf einhvern með (balls) til að koma skútunni á réttan kjöl aftur og ég er akkúrat maðurinn í það“ á Kóki að hafa sagt á fundi alþjóða gjald????? Og endaði með því að tilkynna að Sesar Bank of Iceland myndi opna fljótlega. Lesa meira... |
| 18.10.2008 12:27 Allt á uppleið Daníel Ben Bloggar ![]() „Það er allt á fullu og gríðarleg sala“ sagði hestamaður sem ég hitti í byrjun vikunnar í höfuðborginni. Tamningamaður á suðurlandi tók í sama streng, „er búinn að selja hross fyrir 3 milljónir í vikunni sem er að líða“. Ræktandi í Ölfusinu sagði söluna aldrei verið eins góða á árinu. Í frétt hér á Hestafréttum sem birtist fyrst í Viðskiptablaðinu segir að hross fyrir 10.000.000 hafi selst á sölusýningu í Hestheimum fyrir um viku síðan. Lesa meira... |
| 24.2.2008 20:18 Glæst framtíð í Eyjafirði Þorsteinn Egilsson Bloggar ![]() "Dagurinn í gær, laugardagurinn 23. febrúar var gleðidagur. Þá var reiðhöllin á Melgerðismelum vígð. Því miður missti ég af þeim merka atburði en gleðin er ekki minni fyrir það. Um er að ræða mikið framfaraskref í hestamennsku í Eyjafirði enda hefur það hvarvetna sýnt sig að þar sem góð inniaðstaða er fyrir hendi fær iðkun hestammennskunnar annan brag. Lesa meira... |























