Meistaradeild VÍS
22.1.2010 13:00

Varaknapar kynntir til leiks
Meistaradeild Vís
Nú hafa öll lið í Meistaradeild VÍS skilað inn tilnefningum um varaknapa og hafa þær verið teknar fyrir á stjórnarfundi deildarinnar. Eftirfarandi knapar hafa verið samþykktir sem varaknapar fyrir keppnistímabilið 2010:
Lesa meira...
8.7.2009 22:10

Úrslit í 150m skeiði á Skeiðleikum
Það var Sigurður Sigurðarson á Spá frá Skíðbakka 1 á tímanum 15,04 sem sigraði 150m skeið á Skeiðleikum Skeiðfélagsins í kvöld. Árni Björn Pálsson á Korku frá Steinnesi var í öðru sæti á tímanum 15,44 og þriðji varð Bjarni Bjarnason á Hrund frá Þóroddsstöðum á tímanum 15,51.Meðfylgjandi eru niðurstöður í 150m skeiði.
 
Lesa meira...
4.5.2009 20:35

Fljúgandi skeið í MDV 09 á Vef Sjónvarpi Hestafrétta
Upptökur frá forkeppni og úrslitum í fljúgandi skeiði í Meistaradeild VÍS 2009 eru komnar inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Einnig eru viðtöl við Sigurbjörn Bárðason og Sigurð Sigurðarson í sömu upptöku og úrslitasprettirnir.
Lesa meira...
1.5.2009 19:19

A úrslit í tölti MDV 09
Upptaka frá A úrslitum  í tölti í Meistaradeild VÍS 2009 sem haldin var í Ölfushöll í gærkveldi er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta.
Lesa meira...
1.5.2009 18:36

B úrslit í tölti MDV 09
Upptaka frá B úrslitum  í tölti í Meistaradeild VÍS 2009 sem haldin var í Ölfushöll í gærkveldi er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta.
Lesa meira...
1.5.2009 17:55

Forkeppni í tölti MDV 09
Upptaka frá forkeppni í tölti í Meistaradeild VÍS 2009 sem haldin var í Ölfushöll í gærkveldi er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Aðrar upptökur frá kvöldinu eru í vinnslu og verða birtar um leið og þær eru klárar.
Lesa meira...
1.5.2009 16:39

Myndir frá lokakvöldi MD Vís
Um 330 myndir frá lokakvöldi Meistaradeildar Vís eru komnar inná myndasafn Hestafrétta. Eins og flestum er kunnugt var æsi spennandi töltkeppni í gærkvöldi.




Lesa meira...
1.5.2009 11:09

Heildarúrslit kvöldsins
Meistaradeild Vís
Þá er síðasta móti Meistaradeildar VÍS lokið og má með sanni segja að spennan hafi verið í hámarki. Það var Sigurbjörn Bárðarson, Lífland, sem bar sigur úr býtum í einstaklingskeppninni eftir alveg hreint frábæran árangur í kvöld. Sigraði töltið og endaði annar í fljúgandi skeiði. Sigurbjörn er því meistari Meistaradeildar VÍS 2009.
Lesa meira...
30.4.2009 23:21

Sigurbjörn meistari 2009
Meistaradeild Vís
Já, það má með sanni segja að spennan hafi verið nær óbærileg á köflum í kvöld. Töltið var virkilega spennandi, þar sem Halldór og Nátthrafn frá Dallandi voru langefstir eftir hæga töltið og hraðabreytingarnar. En eftir yfirferðar töltið náðu Sigurbjörn og Grunur að skjótast upp í fyrsta sæti. Í þriðja sæti var hinn ungi Hnokki frá Fellskoti og Hinrik Bragason, þeir áttu frábæra sýningu og hlutu meðal annars níur fyrir yfirferðar tölt.
Lesa meira...
30.4.2009 13:19

Veisla í kvöld
Meistaradeildar VÍS
Í kvöld klukkan 18:30 hefst lokamót Meistaradeildar VÍS. Keppt verður í tölti og fljúgandi skeiði. Mótið hefst á forkeppni í tölti og má gera ráð fyrir mikilli veislu þar því þar munu mætast margir af sterkustu tölturum landsins og er orð manna að sjaldan hafi jafn margir sterkir hestar verið skráðir til leiks í töltkeppni á sama tíma.
Lesa meira...
29.4.2009 09:38

Ráslistar í tölti og fljúgandi skeiði
Meistaradeild Vís
Nú hafa allir knaparnir skilað inn upplýsingum um þau hross sem þeir munu mæta með á morgun fimmtudag þegar keppt verður í tölti og fljúgandi skeiði í Meistaradeild VÍS. Keppni hefst eins og áður hefur komið fram á forkeppni í tölti klukkan 18:30. Forsala aðgöngumiða er í fullum gangi í verslunum Líflands, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi.  
Lesa meira...
28.4.2009 17:13

Meistaradeild VÍS - Forsala aðgöngumiða og dagskrá
Forsala aðgöngumiða er hafin fyrir lokamót Meistaradeildar VÍS n.k. fimmtudag. Forsalan fer fram í hestavöruverslununum Baldvini og Þorvaldi á Selfossi, Líflandi í Reykjavík og Top Reiter í Reykjavík. Húsið tekur um 550 manns, en vegna ársmiða verða einungis 350 miðar seldir. Því er um að gera að tryggja sér aðgöngumiða í tíma því gera má ráð fyrir að það verði uppselt á þetta mót eins og var með fjórgangs- og fimmgangsmótin. Verð á aðgöngumiðanum er 1.500 krónur fyrir 13 ára og eldri og 500 krónur fyrir 12 ára og yngri.
Lesa meira...
28.4.2009 10:26

Tölt og fljúgandi skeið
Meistaradeild Vís
Enn eiga nokkrir knapar eftir að skila upplýsingum um hvaða hross þeir munu mæta með n.k. fimmtudag á lokamót Meistaradeildar VÍS þegar keppt verður í tölti og fljúgandi skeiði.

Lesa meira...
27.4.2009 11:13

Allt opið enn
Meistaradeild Vís
Nú þegar eitt mót er eftir í deildinni er gaman að skoða hverjir eiga enn möguleika á sigri. Það verður keppt í tveimur greinum á næsta móti því eru 24 stig í pottinum fyrir sigur og allt getur gerst.

Lesa meira...
26.4.2009 14:31

Stóðhestakynning Meistaradeildar
Það var mikil stóðhestaveisla sem haldin var sumardaginn fyrsta í Ármóti en hún var haldin í tengslum við Meistaradeild VÍS. Margir stórglæsilegir stóðhestar voru sýndir og nú er upptaka af þeim öllum komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta.
Lesa meira...
25.4.2009 10:39

Viðtal við Didda Bárðar
Sigurbjörn Bárðarson er einn besti keppnismaður í hestaíþróttum fyrr og síðar. Honum hefur þó ekki gengið sem skildi í Meistaradeildinni í ár og var hann tekin tali eftir keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði í Meistaradeildinni sem haldin var síðastliðin fimmtudag.
Lesa meira...
25.4.2009 07:20

Viðtöl við knapa Meistaradeildar
Keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði í Meistaradeild VÍS var haldin á sumardaginn fyrsta í Ármóti. Fjölnir Þorgeirsson settist niður með nokkrum knöpum deildarinnar eftir keppni á grillbarnum í Ármóti og tók þá tali.
Lesa meira...
24.4.2009 18:20

Gæðingaskeið í MDV 09
Upptaka frá Gæðingaskeiði sem fram fór í Meistaradeild VÍS 2009 er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Að þessu sinni var keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði haldin í Ármóti.
Lesa meira...
24.4.2009 14:29

Úrslit í 150m skeiði í MDV
Upptaka frá úrslitum í 150m skeiði sem fram fór í Meistaradeild VÍS er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Að þessu sinni var keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði haldin í Ármóti.
Lesa meira...
24.4.2009 13:46

Forkeppni í 150m skeiði í MDV 09
Upptaka frá forkeppni í 150m skeiði sem fram fór í Meistaradeild VÍS er komin inn á Vef Sjónvarp Hestafrétta. Að þessu sinni var keppni í 150m skeiði og gæðingaskeiði haldin í Ármóti.
Lesa meira...
Eldri fréttir