“Á ég ekki að halla mér inn í beygjuna?” sagði keppnisknapinn með undrunar- og spurnarsvip. “En það gera allir.” hélt hann áfram. “Þetta getur ekki verið rétt hjá þér!” sagði hann með nokkru yfirlæti. Ég var að útskýra fyrir honum hvernig hann skyldi ríða tölt í reiðhöllinni svo hesturinn hans héldi betur jafnvægi í hornunum.
“Sjáðu þennan hest.” sagði ég um leið og ég byrjaði að teikna í sandinn mynd (M1) af hesti séð ofan frá. “Hugsum okkur að hann sé að fara beint áfram í áttina að FS eins og línan sýnir.” sagði ég og dró beina línu frá vinstri til hægri.
“Ef líkamsbeiting hans er rétt þá á nefið á honum að vera fyrir ofan reiðleiðina, framfætur sitthvoru megin við reiðleiðina og það sama gildir um afturfæturna.” sagði teiknarinn ég og “þá eiga línurnar a og d að vera þvert á reiðleiðina eins og þú sérð en þær markast af hvoru fótapari fyrir sig.” kom síðan sem frekari útskýring á listaverkinu.
“Línurnar b og c, sem myndast af setbeinum knapans annars vegar og hins vegar af öxlum hans, eiga að vera þvert á reiðleiðina eins og hinar þegar riðið er beint áfram á réttan hátt.” staðhæfði lærimeistarinn við þann sem á baki sat og beið augljóslega eftir því að ég kæmi mér að efninu.

“Taktu nú eftir herra óþolinmóður! Svona ber hestur sig til þegar hann beygir á réttan hátt” sagði ég og dró upp nýja mynd (M2) af pödduhesti þar sem reiðleiðin var nú bogadregin en ekki bein. “Hér sérðu að knapi segir hesti með setbeinum sínum hvernig hestur á að bera sig til að aftan og þess vegna eru línur a og b samsíða. Og axlir knapa segja á sama hátt hvernig hestur á að bera sig til að framan og því eru axlalínur knapa og hests samsíða”.
“Heyrðu mig nú? Eru að segja að maður eigi nánast að vinda upp á sig?” sagði nú sá óþolinmóði með augljósu þettaerrugllátbragði. “Já. Þú gerir það með því að snúa þér í áttina sem þú er að fara og setur innra setbeinið á þér um leið fram. Mér finnst það auðveldast sjálfum með því að setja innra hnéð á mér framar en hitt. Þannig ríð ég beygjur.” útskýrði ég og leiddi hjá mér ókurteisina.
“Þú, hins vegar, ferð í beygjurnar eins og þessi mynd (M3) sýnir og það er mjög algeng aðferð til að fá nefið á hesti út í beygju, takttruflanir og hest á framhlutann svo fátt eitt sé nefnt.” sagði ég með blíðri röddu engilröddu og pínu ertni svona rétt í lokin á eintalinu.

“Best að prufa þetta rugl. Beygjurnar geta varla versnað frá því sem nú er?” heyrðist mér hann segja áður en hann fór einn hring í reiðhöllinni á tölti. “Farðu annan hring á sama hátt.” gólaði ég á eftir honum þegar hann reið hestinum í fullkomnu jafnvægi á tölti fram hjá mér í einni beygjunni eins og hann gerði við hinar þrjár. “Bara til að tékka á því hvort þessi hringur hafi verið tilviljun eða ekki.”
Hvernig ríður þú beygjur?
Með kveðju
Magnús Lárusson
www.urvalshestar.is
















