Að setja hest á rassgatið

“Settu hann bara á rassgatið!” er ráð, sem birtist oft í tímaritum og á vefsíðum hestamanna, til þeirra sem eru í einhverju basli með að töltsetja hest og ríða hægt tölt. Pistill þessi verður um hvað þetta þýðir í raun...

“Settu hann bara á rassgatið!” er ráð, sem birtist oft í tímaritum og á vefsíðum hestamanna, til þeirra sem eru í einhverju basli með að töltsetja hest og ríða hægt tölt. Pistill þessi verður um hvað þetta þýðir í raun og hvað þarf til að hestur fari á rassgatið eins og sat er á kúlmáli.

Að setja hest á rassgatið merkir að hestur eykur burð afturfóta með því að kreppa lend. Mjaðmargrind hests, sem er hringlaga, ræður breidd og lengd lendar með stefnu skáhalt aftur og niður frá mjaðmarhornunum. Kviðvöðvinn, sem tengist mjaðmargrindinni að aftan og bringubeininu að framan gegnir hér lykilhlutverki. Hann færir mjaðmargrindina að neðanverðu fram í átt að bringubeini með því að dragast saman og lend kreppist við það, þ.e. verður brattari séð frá hlið. Að kreppa lend er forsenda fyrir því að söfnun geti átt sér stað. Ástand kviðvöðva ræður því hversu mikið lend getur kreppst og hve lengi. Feit hross eins langstaðnir reiðhestar og hryssur, sem hafa átt mörg folöld, hafa afar slappa kviðvöðva sem tekur langan tíma að komast í það form að þeir geti verið með lendina kreppta í langan tíma. Miðlangir hestar virðast þurfa lengri tíma að öllu jafnaði til að kviðvöðvar komist í kreppuhæft stand en hlutfallaréttir hestar.

Skref afturfótar ræðst af vegalendinni, sem afturfótur færist fram, frá því honum er lyft frá jörðu þar til hann er settur niður á jörðu. Skrefinu má skipta í framhluta og afturhluta skrefs með lóðlínu sem er dregin frá lærleggstopp að jörðu. Framhluti skrefsins heldur líkamsþunga hests uppi, en afturhluti skrefsins ýtir hestinum áfram. Þegar hestur kreppir lend þá stækkar framhluti skrefs og afturhluti skrefs minnkar að sama skapi. Við þessa tilfærslu á lendinni ber hún þunga hestsins lengur með afturfótunum og tekur að nokkru við af burðarhlutverki framfóta og hann verður minna á framhlutanum en ella.

Þekkir þú mun á krepptri og ókrepptri lend?

Með kveðju
Magnús Lárusson
www.urvalshestar.is