Að taka við hesti úr tamningu

“ Þetta verður allt í lagi.” sagði eigandi hests öruggur með sig þegar ég var að segja syni hans, rúmlega tvítugum, til hvernig ég riðið hestinum, sem ég hafði verið með í taminginu í marga mánuði. “Strákurinn er öllu vanur....

“ Þetta verður allt í lagi.” sagði eigandi hests öruggur með sig þegar ég var að segja syni hans, rúmlega tvítugum, til hvernig ég riðið hestinum, sem ég hafði verið með í taminginu í marga mánuði.

“Strákurinn er öllu vanur. Þú þarft ekki að hafa nokkrar áhyggjur af honum. Hann spjarar sig.” bætti hann við með stolti. “Ég hef ekki áhyggjur af stráknum.” svaraði ég. “Mér er hins vegar annt um að hesturinn komist heill út úr þessari fyrstu reiðprufu ykkar feðgana og það gerist frekar ef reiðlag ykkar er sem líkast mínu a.m.k. í dag.” bætti ég við til útskýringar. “Já, þú meinar. Ég hugsaði ekki út í það frá því sjónarhorni.” sagði eigandinn en núna með asnigetégveriðröddu.

Tamning hests er mest uppbyggjandi fyrir hann þegar enginn mistök eða óhöpp verða á tamningaferli hans. Reynt er að láta allar aðgerðir heppnast m.a. með því að setja aðstæður upp þannig að þær vinni með en ekki á móti því sem á að gerast. Á þann hátt aukast líkurnar á því að traust og virðing skapist milli hests og þess manns sem temur hann. Hestur lærir á reiðlag temjara og venst þeim stað sem hann er taminn á. Að tamningu lokinni breytist allt fyrir hestinum þegar heim er komið. Fyrir hann er þetta nýr staður þó að heim sé komið og ný handtök þó eigandinn taki sjálfur við frekari tamningu. Þess vegna er einna árangursríkast að knapi, sem á halda áfram tamningu hests, komi inn í tamningarútinu hestsins þegar hann er og þar sem hann er í tamningu. Á þann hátt er óörygginu, sem nýr staður getur valdið hesti, ekki til staðar til að minnka líkur á árangursríkri kynningu á nýjum knapa. Hér er ekki bara spurningin um hvort nýr knapi geti riðið og komist af við hestinn heldur líka hvort hesturinn finni sig öruggan með nýja knapann, skilji reiðag hans og virði hann.

Hvernig fynnst þér best að kynnast nýjum reiðhesti? Heldur þú að hestinum finnist það sama og þér?

Með kveðju
Magnús Lárusson
www.urvalshestar.is