Æskan og hesturinn í mars

Einn stærsti viðburður hestamennskurnar á hverju ári er stórsýningin Æskan og hesturinn sem haldin er í Reiðhöllinni í Víðidal. Það eru hestamannafélögin Andvari, Fákur, Sörli, Hörður, Gustur, Sóti og Máni sem standa að sýningunni, en árið í ár er 16...

Einn stærsti viðburður hestamennskurnar á hverju ári er stórsýningin Æskan og hesturinn sem haldin er í Reiðhöllinni í Víðidal. Það eru hestamannafélögin Andvari, Fákur, Sörli, Hörður, Gustur, Sóti og Máni sem standa að sýningunni, en árið í ár er 16 sýningarárið.

Eins og nafn sýningarinnar gefur til kynna þá er það ungafólkið í áðurnefndum hestamannafélögum sem koma fram með atriði en reikna má með að ríflega 250 börn, og unglingar taki þátt í sýningunni með hestana sína. Einnig munu nokkrir landsfrægir skemmtikraftar koma fram

Í ár verður sýningin haldin helgina 11-12 mars næstkomandi og eru tvær sýningar hvorn dag. Fyrri sýningin klukkan 13 og sú seinni klukkan 16. Aðgangur er ókeypis og árlega mæta u.þ.b. 5000 áhorfendum á sýningarnar svo það er um að gera fyrir fólka að mæta tímanlega.

Mjög fjölbreytt atriði eru í boði en fram koma bæði yngstu knapar landsins og Íslandsmeistarar seinasta árs. Skemmtilegt er að benda á að margir þeirra sem hömpuðu Íslandsmeistaratitli á seinasta ári, komu einmitt fram sem pollar á sýningu hjá Æskunni og hestinum fyrir nokkrum árum síðan. Það má því reikna með að eitthvað af þeim glaðlegu ungu knöpum sem koma fram í Grímureiðinni í ár, muni koma fram sem Íslandsmeistarar eftir nokkur ár.