Mánudaginn 20. nóvember kl. 15:00 flytur Dr. Þorvaldur Árnason, kynbótafræðingur við Landbúnaðarháskóla Íslands, fræðsluerindi hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti. Alþjóðlegt kynbótamat fyrir íslensk hross byggir á ættarskrá yfir rúmlega 200,000 hross sem eru skráð í gagnagrunn Veraldarfengs (World Fengur) og á kynbótadómum rúmlega 26 þúsund hrossa í 11 þjóðlöndum.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að vegna örs flæðis erfðaefnis frá Íslandi er skyldleiki milli hrossa sem ræktuð eru og sýnd erlendis nánast sá sami sem milli hrossa innan Íslands. Dómar á kynbótasýningum fyrir íslensk hross samkvæmt kerfi FEIF eru staðlaðir og því lítil ástæða til að ætla að uppröðun hrossa á sýningum erlendis yrði mikið frábrugðin því sem hún yrði á íslenskum sýningum. Hin þéttu erfðatengsl milli landa og stöðlun kynbótadómanna gefur góðar forsendur fyrir skilvirku kynbótamati sem leyfir samanburð kynbótahrossa yfir landamæri og þar sem meira magn upplýsinga nýtist við kynbótamatið.
Í fyrirlestrinum verða reifaðar þær rannsóknir og sú þróunarvinnu sem lögð var í hönnun þessa alþjóðlega kynbótamats fyrir íslensk hross. Helstu niðurstöður nýjustu keyrslu verða kynntar og nokkrir hagnýtir möguleikar fyrir áhugasama ræktendur til að meta áreiðanleika matsins miðað við aðgengilegar upplýsingar verða kynntar.
Fræðsluerindi LbhÍ eru haldin í fundarsal LbhÍ á Keldnaholti, 3. hæð og eru öllum opin







