Áskorun til landsmótsnefndar

Það eru án efa skiptar skoðanir meðal fólks um réttmæti þeirrar ákvörðunar að fresta Landsmóti. Engu að síður hlýtur það að vera mikill léttir fyrir það fólk sem stefndi að því að vera þátttakendur í mótinu, eigendur hrossa, keppendur og...

Það eru án efa skiptar skoðanir meðal fólks um réttmæti þeirrar ákvörðunar að fresta Landsmóti. Engu að síður hlýtur það að vera mikill léttir fyrir það fólk sem stefndi að því að vera þátttakendur í mótinu, eigendur hrossa, keppendur og aðstandendur þeirra að vita endanlega niðurstöðu í málinu.

Eftir stendur hins vegar allt það fólk sem búið var að ætla sér að mæta á mótið sem áhorfendur og þar með búið að skipuleggja sumarfrí í kringum mótið, leigja sér gistiaðstöðu og gera ýmsar ráðstafanir vegna þessa með tilheyrandi kostnaði.
Þeirri áskorun er hér með varpað fram að helgina 2-4. Júlí verði haldin á vegum Landsmótsnefndar og/eða hestamannafélaganna í Skagafirði, hátíð hestamanna á Vindheimamelum. Þar verði boðið uppá ýmiskonar skemmtun sem tengist hestamennskunni beint og óbeint. Sem betur fer er það þannig að nú þegar hefur töluvert af hrossum náð sér vel af veikinni og því ætti að vera hægt að bjóða uppá hestasýningar af ýmsu tagi og jafnvel að keppa í einstökum greinum. Sölu- og þjónustuaðilar á hestatengdum varningi gætu kynnt sínar vörur og þjónustu á markaðstorgi. Síðan væru í boði aðstaða og skemmtun fyrir alla fjölskylduna, leiktæki, kvöldvökur etc. Ef það er eitthvað sem hestamenn eru færir í þá er það jú að skemmta sér og öðrum.
Öll aðstaða er til staðar fyrir þetta á Vindheimamelum og undirbúningur Landsmóts það langt kominn að það ætti ekki að vera flókið á þeim tíma sem er til stefnu að skipuleggja þessa hátíð með nýjum formerkjum. Með þessu mætti minnka það tjón sem bæði venjulegt hestafólk og mótshaldarar verða annars fyrir og ekki síður að snúa við þeirri neikvæðu og leiðinlegu umræðu sem hefur verið í kringum okkur síðustu vikurnar og fara í staðinn að tala um og gera eitthvað skemmtilegt!
Reykjavík 01-06-2010
Tryggvi Þór Ágústsson
áhugamaður um skemmtilega hestamennsku