Augað er besti dómarinn

“Trúir þú á þetta?” spurði kunnur hrossaræktandi við mig um leið og hann benti á kynbótamat stóðhests í nýjasta stóðhesablaðinu. Ég jánkaði því annar hugar þar sem ég var að skoða greinarkorn í blaði um óánægju með dóma á kynbótahrossum...

“Trúir þú á þetta?” spurði kunnur hrossaræktandi við mig um leið og hann benti á kynbótamat stóðhests í nýjasta stóðhesablaðinu. Ég jánkaði því annar hugar þar sem ég var að skoða greinarkorn í blaði um óánægju með dóma á kynbótahrossum meðan ég beið eins og hann eftir að komast að hjá dýralækni héraðsins.

“Notar þú kynbótamatið þegar þú velur hesta á merarnar þínar?” hélt viðmælandi minn áfram greinilega ósáttur við áhugaleysi mitt. “Já, ég styðst við það.” sagði ég og leit aðeins upp úr blaðinu með svarinu til að gera aðeins minna úr augljósu áhugaleysi mínu. “Það geri ég aldrei.” sagði hann ögrandi. “Kynbótamatið er algjör vitleysa og ekkert að marka.” bætti hann við. “Ég nota kynbótadómana beint þrátt fyrir að dómarnir séu huglægir og helst vil ég sjá hrossin sjálfur því augað er nú besti dómarinn.” sagði viðmælandi minn með festu í röddinni. Ég lagði blaðið frá mér.

“Ég veit ekki betur að við öll, sem dæmum hross, notum augun til að greina hvernig þau líta út og hvað þau gera. Við höfum mér vitanlega ekkert skárra til þess en augun. Síðan berum við það sem við teljum okkur sjá saman við skrifaðan dómskala til að finna út einkunnir á viðkomandi gjörningum. Flestir, sem þekkja dómskalann, eru honum sammála í megin dráttum. Síðan eru einkunnirnar meðhöndlaðar á ákveðinn hátt til að reikna út kynbótamatið.” romsaði ég út úr mér í einni útöndun því þetta var ekki í fyrsta sinn sem þetta staðlaða svar kom út úr mínum munni. “Mér vitanlega þá er ekkert minni nákvæmni á þessum mælingum með auganu þó kallaðar séu huglægar en værum við með einhverja aðra mælistokka og gætum því kallað þá hlutlæga.”

“Hins vegar er það, sem betur fer, að smekkur manna er misjafn og kemur það fram í því hvernig hross þeir vilja rækta og laðast að og vilja nota til kynbóta og það ber að virða.” sagði ég með lækkandi blóðþrýstingi og þönkum um hvern fjárann væri ég að messa yfir manninum. Mér kæmi ekkert við hvað honum fyndist og hvað hann gerði í sinni hrossarækt og mér bæri að virða hans ákvarðanir sem og skoðanir.

En svona okkar á milli þekkir þú kynbótadómskalann?

Með kveðju
Magnús Lárusson
www.urvalshestar.is