Barna- unglinga- og ungmennamót í Ölfushöllinni.

Sunnudaginn 19. febrúar n.k. verður opið mót í Ölfushöllinni og hefst mótið kl. 11:00. Mótið verður það fyrsta af þremur og verður byrjað á fjórgangi. Byrjað verður á börnum, unglingum og síðan ungmennum. Skráning verður fimmtudaginn 16. febrúar milli kl....

Sunnudaginn 19. febrúar n.k. verður opið mót í Ölfushöllinni og hefst mótið kl. 11:00. Mótið verður það fyrsta af þremur og verður byrjað á fjórgangi. Byrjað verður á börnum, unglingum og síðan ungmennum. Skráning verður fimmtudaginn 16. febrúar milli kl. 18:00 og 20:00 hjá eftirfarandi aðilum.

Anna Sigurðardóttir sími: 898-2017
Sigurður Ragnarsson sími: 896-0361
Teitur Árnason sími: 894-2018
Agnes Hekla Árnadóttir sími: 896-2018

Annað mót verður 19. mars og verður þá keppt í tölti. Mótaröðinni lýkur síðan með keppni í fimmgangi 17. apríl. Um stigamót er að ræða og verða þrír samanlagðir efstu knapar í hverjum flokki verðlaunaðir sérstaklega.