Bergþóra samanlagður sigurvegari í Mjøscup í Noregi

Það er víðar en á Íslandi að haldnar séu mótaraðir. Hjá Íslandshestafélaginu Náttfara í Noregi er haldin árlega Mjøskcup, þar sem þátttakendur koma víða að. Meðal þeirra í ár var einn af okkar félögum Bergþóra Sigtryggsdóttir. Hún gerði sér lítið...

Það er víðar en á Íslandi að haldnar séu mótaraðir. Hjá Íslandshestafélaginu Náttfara í Noregi er haldin árlega Mjøskcup, þar sem þátttakendur koma víða að. Meðal þeirra í ár var einn af okkar félögum Bergþóra Sigtryggsdóttir.

Hún gerði sér lítið fyrir og sigraði samanlagða keppi á merinni List frá Frøberg með 25.77 stig, næstur á eftir henni kom Andre Zieman með 23.9 stig og í þriðja sæti hafnaði Siri Standal með 22.6 stig. Þetta er frábær árangur og gaman að fá fréttir af okkar fólki í eldlínunni á erlendri grundu.