Hestamenn furða sig á biðlista sem var kominn um 09.00 í morgun þar sem um 500 hross voru skráð á um klukkutíma og er það ómögulegt að tveir starfsmenn hafa annað því á svo stuttum tíma. Fjölmargir hestamenn hafa haft samband við Hestafréttir til að skora á Guðlaug Antonsson ráðanaut að bæta inn viku þar sem fjölmargir hestar eru komnir á biðlista.






















