Bikarmót Norðurlands 2007

Bikarmót Norðurlands 2007 í hestaíþróttum verður haldið við Hringsholt í Svarfaðardal föstudaginn 17. og laugardaginn 18. ágúst nk. þar sem etja kappi knapar og hestar af Norður- og Austurlandi.Um er að ræða sveitakeppni, þar sem keppt er í öllum helstu...

Bikarmót Norðurlands 2007 í hestaíþróttum verður haldið við Hringsholt í Svarfaðardal föstudaginn 17. og laugardaginn 18. ágúst nk. þar sem etja kappi knapar og hestar af Norður- og Austurlandi.
Um er að ræða sveitakeppni, þar sem keppt er í öllum helstu greinum hestaíþrótta.

Í unglingaflokki er keppt í tölti (2) og fjórgangi (2) og í fullorðinsflokki er keppt í tölti (3), fjórgangi (3), fimmgangi (3), slaktaumatölti (2), gæðingaskeiði (3), og 100 m flugskeiði (3).

Knapafundur verður kl. 16:00 á föstudeginum. Keppni hefst kl. 17:00 með fjórgangi fullorðinna, síðan verður slaktaumatölt, fimmgangur, tölt unglinga, tölt fullorðinna og 100 m skeið.
Á laugardag hefst keppni með fjórgangi unglinga og síðan tekur við úrslitakeppni í öllum greinum og endað á gæðingaskeiði. Um kvöldið verður svo grillveisla og gleði í Hringsholti.

Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 9. ágúst kl. 20:00. Skráð skal í gegnum mótafeng og er númer móstsins IS2007HRI078

Sömu lykilorð eru notuð og við skráningu á Íslandsmót. þ.e.a.s aðgangsorð og lykilnúmer viðkomandi félags inn í Mótafeng.