Bikarmót Norðurlands 2007 í hestaíþróttum verður haldið við Hringsholt í Svarfaðardal föstudaginn 17. og laugardaginn 18. ágúst nk. þar sem etja kappi knapar og hestar af Norðurlandi. Knapafundur verður kl. 16:30 á föstudag, en keppni hefst kl. 17:00 með forkeppni tölti í opnum flokki og unglingaflokki. Þá verður forkeppni í fimmgangi og 100 m skeið.
Á laugardag hefst keppni kl. 9:00 með slaktaumatölti, forkeppni í fjórgangi unglinga og opnumflokki og síðan tekur við úrslitakeppni í öllum greinum og endað á gæðingaskeiði.
Um er að ræða sveitakeppni, þar sem keppt er í öllum helstu greinum hestaíþrótta. Í unglingaflokki er keppt í tölti (2) og fjórgangi (2) og í fullorðinsflokki er keppt í tölti (3), fjórgangi (3), fimmgangi (3), slaktaumatölti (2), gæðingaskeiði (3), og 100 m flugskeiði (3). Samanlagður árangur keppenda í öllum greinum ræður síðan úrslitum.
Dagskrá:
Föstudagur 17/8:
Kl. 16:30 – Knapafundur
Kl. 17:00 – Tölt opinn flokkur
KL. 18:00 – Tölt unglingar
Kl. 19:00 – Fimmgangur opinn flokkur
KL. 20:00 – 100 m skeið
Laugardagur 18/8:
Kl. 09:00 – T2 opinn flokkur
Kl. 09:20 – Fjórgangur unglinga
Kl. 10:00 – Fjórgangur opinn fl.
Kl. 11:00 Tölt unglingaflokkur – úrslit
Matarhlé
Kl. 13:00 Tölt opinn flokkur – úrslit
Kl. 13:30 Fimmgangur – úrslit
Kl. 14:00 – T2 – úrslit
Kl. 14:30 Fjórgangur unglinga – úrslit
Hlé
Kl. 15:30 Fjórgangur opinn fl. – úrslit
Kl: 16:00 Gæðingaskeið
















