Blær frá Hesti á Suðurlandi

Stóðhesturinn Blær frá Hesti verður til afnota á suðurlandi í sumar. Fyrstu afkvæmi Blæs hafa komið til dóms í ár og í fyrra, en það eru afkvæmi hans frá því að hann var tveggja og þriggja vetra. Þrjár af fjórum...

Stóðhesturinn Blær frá Hesti verður til afnota á suðurlandi í sumar. Fyrstu afkvæmi Blæs hafa komið til dóms í ár og í fyrra, en það eru afkvæmi hans frá því að hann var tveggja og þriggja vetra. Þrjár af fjórum hryssum sem komnar eru á tamningaraldur hafa því komið til dóms (allar sýndar 4.vetra)

Blær var sýndur á Sörlastöðum nú í vor og hlaut 8,21 fyrir sköpulag (8,5 fyrir bak/lend og samræmi, 9,0 fyrir hófa og 8,0 fyrir fætur) og 8,69 fyrir hæfileika (8,5 fyrir tölt, brokk, feg. reið, 9,0 fyrir vilja/geðslag og 9,5 fyrir skeið) sem gerir 8,50 í aðaleinkunn.

Blær er undan heiðursverðlauna hestinum Gusti frá Hóli og 1.verðlauna Otursdótturinni Blíð frá Hesti. Blíð átti þrjú afkvæmi (einn geldingur, ein hryssa og Blæ) og hafa tvö þeirra farið í 1.verðlaun. Í kvennlegg hafa ættmæður hans allar farið í eða um 1.verðlaun ( M: 8,06, MM: 7,91, MMM: 8,00 og MMMM: 7,95 (árið 1965)) og sýnir það að um ættsterkan hest er að ræða. Á bakvið Blæ eru höfðingjar eins og Otur frá Sauðárkróki, Hlynur frá Báreiksstöðum, Gáski frá Hofstöðum, Þáttur frá Kirkjubæ ofl.

IS1998135588 Blær frá Hesti

F.: IS1988165895 Gustur frá Hóli
Ff.: IS1973135980 Gáski 920 frá Hofsstöðum
Fm.: IS1978257260 Abba 5449 frá Gili

M.: IS1989235588 Blíð frá Hesti
Mf.: IS1982151001 Otur 1050 frá Sauðárkróki
Mm.: IS1981235031 Fruma 6485 frá Syðstu-Fossum

Hæsti dómur
Sköpulag: 7,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 9,0 – 8,0 = 8,21
Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 9,5 – 8,0 – 9,0 – 8,5 – 7,5 = 8,69
Hægt tölt: 8,5
Aðaleinkunn: 8,50
Knapi: Þorvaldur Árni Þorvaldsson

Dæmd afkvæmi:

IS2002235587 Blæja frá Hesti M.: IS1990236410 Harka frá Lundum II
Sýningarár: 2006
Meðaleinkunn sköpulags: 8,04 Meðaleinkunn hæfileika: 8,04
Aðaleinkunn: 8,04

IS2002235517 Glódís frá Nýjabæ M.: IS1987235515 Þóra frá Nýjabæ
Sýningarár: 2006
Meðaleinkunn sköpulags: 7,61 Meðaleinkunn hæfileika: 7,56
Aðaleinkunn: 7,58

IS2001236672 Bylgja frá Borgarnesi M.: IS1983265031 Ör frá Stóra-Dal
Sýningarár: 2005
Meðaleinkunn sköpulags: 8,00 Meðaleinkunn hæfileika: 7,95
Aðaleinkunn: 7,97

upplýsingar í s: 866-1230 eða odinn@bssl.is