Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
3.12.2008 16:27
Stólaáseta
Emanon bloggar

Núna ætla ég að fjalla ýtarlega um stólaásetu, orsök og galla hennar. Stólaáseta er kölluð þegar sæti knapans ýtist aftur úr dýpsta punkti sætisins og aftur að stéli hnakksins. Mjaðmagrindin fellur aftur og sætisvöðvarnir beita sér rangt og eru í slæmri aðstöðu til að styðja við bak knapans. 

Í gamla daga voru meira og minna allir í stólaásetu, ef maður flettir yfir gömul hestatímarit þá eru flestir knapar í stólaásetu. Orsök stólaásetu á þeim tíma var í fyrsta lagi hnakkarnir, gamli pakistaninn bauð ekki uppá neitt annað en að knapinn færi ósjálfrátt í stólaásetu. Hún þótti ekki röng á þeim tíma, rétt eins og svagt bak þótti gott bak.
 
Þegar við veltum orsökum stólásetu nú til dags fyrir okkur, þá getur verið of stutt í ístöðunum, knapinn byrjar að spyrna í og fæturna fara fram eða það er of langt í ístöðunum og knapinn teygir fæturna fram til þess að ná í ístöðin. Og eða hann hefur riðið of lengi í hnakk sem hefur þyngdarpunktinn of aftarlega eða bara hentar knapanum alls ekki, styður ekki við hann að aftan, of litlir hnépúðar og margt fleira.
 
Knapinn situr ekki á setbeinunum og hæfni hans til að gefa réttar ábendingar með sæti og fótum er mun minni jafnvel engin. Knapinn fjaðrar lítið í mjöðmum og á erfitt með að fylgja hreyfingum hestsins. Fætur knapans eru of framarlega og hné og læri geta togast upp og samband fótahvatningar tapast nánast alveg. Knapinn situr oft með efri hluta líkamans í álútri stellingu og með hokið bak, óstöðugt höfuð sem ýtist fram. Þyngdarpunktur knapans er fyrir aftan þyngdarpunkt hestsins og hann á erfitt með að fylgja eftir snöggum hraðabreytingum og grípur þá til þess ráðs að hanga í taumnum til að detta ekki aftur fyrir sig.
 
Knapinn hefur slæmt jafnvægi og hann er stífur. Hann bæði truflar hestinn og gefur rangar ábendingar. Knapi í stólaásetu truflar hestinn undantekningarlaust á brokki, hann nær ekki að nota fæturna sem dempara og heggur þar að leiðandi ofan í bakið á hestinum. Öðrum orðum fer á móti hreyfingunum. Taumhaldið er ekki stöðugt þar sem jafnvægið er mikið byggt á taumunum.
 
Stólaáseta er slæmur galli því auk þess að vera ekki í fullkomnu sambandi og jafnvægi við hestinn, er þyngdin að lenda of aftarlega á baki hestsins og oftar en ekki orsakar mikið álag á spjaldhryggjaliðina sem hafa ekki stuðning af rifbeinunum eins og brjósthryggjarliðirnir þar sem við eigum að vera staðsett.  Afleiðingar langvarandi stólásetu geta verið vöðvabólga og í verstu tilfellum getur orðið kölkun í hryggjarliðum á þessu svæði.
 
Það þarf að byrja á að rétta knapann við í mjöðmunum, setja mjaðmirnar fram og láta hann fá tilfinningu fyrir því að sitja á setbeinunum. Mikilvægt að læri, hné og ökklar knapa séu slakir og fjaðrandi niður. Gott getur verið að æfa sig á mjög rólegum hesti og þá jafnvel í ásetuæfingum og ekki verra að vera ístaðslaust  til að finna rétt jafnvægi. Ýmsar æfingar geta verið hjálplegar til að leiðrétta stólásetu, t.d gera sig stóran, rétta sig alveg upp. Teygja tærnar niður og aðeins aftur og láta fótinn svo falla í eðlilega stöðu. Ég veit það mæta vel sjálf hversu erfitt er að leiðrétta ásetugalla, það er hægara sagt en gert. Ef knapinn er tilbúin að leiðrétta ásetuna, þá er best að yfirfara sjálfan sig reglulega. Bein lína frá eyra, öxl, mjöðm og hæl.
 
 
 

 





Til baka    






Deila
Til baka