Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - www.icehorsenews.com - www.hestafrettir.dk - www.hestafrettir.se - www.hestafrettir.no - www.hestafrettir.deLófatölvuvefurRSS
9.12.2008 21:14
Yfirlína/söfnun
Emanon bloggar
M.1: Hesturinn færir þyngdina á afturpartinn. M.2-3: "vinnu"form og söfnun. M.4: Þennan vöðva þurfum við að virkja og styrkja, mikilvægi fótaábendinga. M.5: Dæmi um svokallaða hengibrú.
M.1: Hesturinn færir þyngdina á afturpartinn. M.2-3: "vinnu"form og söfnun. M.4: Þennan vöðva þurfum við að virkja og styrkja, mikilvægi fótaábendinga. M.5: Dæmi um svokallaða hengibrú.

Þjálfun hefur áhrif á uppbyggingu helstu vöðva og hvernig þeir vinna saman, þess vegna verður knapinn að hafa þekkingu á þeim. Forsenda fyrir réttri yfirlínu er að hann sé alveg spennu og stífnislaus.

Söfnun er þegar hesturinn ber meiri þunga á afturfótum heldur en á framfótum. Hesturinn dregur líkamann saman upp undir sjálfan sig, spennir magavöðvana, hryggurinn fer upp, afturhlutinn dregst saman undir hestinn og hausinn fellur í lóð og yfírlína verður rétt.

Hesturinn er ekki skapaður til að bera manninn. Hesturinn getur ekki fundið út hvernig best sé að bera þessa þyngd, nema að hluta til. Þjálfarinn verður að leiðbeina hestinum inn í rétt “vinnu” form. Mikilvægt er að byrja þjálfunina á að bæta yfir-og undirlínu. Fá hestinn í grunnform, þar að segja hesturinn er lág reistur og vinnur rétt með líkamanum.

Bakið myndar brú á milli fram og afturhluta. Bakið getur líkst hengibrú eða bogabrú. Hengibrúin er óstöðug og veikburða, eins og hestur með stutta og fatta yfirlínu. Bogabrúin er stöðug og sterk, eins og hestur með langa og hvelfda yfirlínu. Hesturinn getur verið í falskri söfnun, en verið með háan fóta-og höfuðburð. En líkamsbeiting hestsins er ekki rétt, ef yfirlína er eins og hengibrú.

Enginn knapi kýs að þjálfa sinn hest þannig að hann gangi á framhlutanum, taumþungur, lágreistur og lendar-, bak- og magavöðvar óvirkir eða stífir. Það er ekki afleiðing vanrækslu á hestinum eða lítillar þjálfunnar endilega, heldur vanþekkingar knapans. Það er jafn auðvelt að kenna hestinum ranga svörun og rétta svörun. Lykillinn að léttum, ánægðum og kröftugum hesti sem gengur viljugur, taumléttur og orkumikill á lausum taumum, vel safnaður og í flottum burði, er mikil, markviss og rétt vinna. Einnig er mjög mikilvægur hluti af söfnuninni að hesturinn stækkar afturfótaskrefið og eykur burð. Oftast eykst bóghreyfing þegar hann hækkar að framan og lækkar að aftan og þar af leiðandi eykst fótaburðurinn með

Þjálfunarstigin eins og Eyjólfur Ísólfsson setti upp:

1. Slakur (laus við spennu): Hesturinn er rólegur, óhræddur, vöðvar og vöðvakerfi fjaðrandi og án stífni. Hesturinn er lágreistur, mjúkur og frjáls í hreyfingum,

2. Taumsamband, taktfesta – jafn hraði: Hesturinn hreyfir sig með jöfnum hrynjanda hreyfinga. Létt taumsamband og samhæfni í ábendingum.

3. Sókn áfram (vilji, samvinna): Hesturinn sættir sig við leiðtogahlutverk knapans og sækir áfram viljugur og ánægður hverja þá leið sem knapinn beinir honum.

4. Hesturinn er samspora (stilltur beint): Hesturinn er jafnsterkur (enginn misstyrkur), jafnvígur til beggja handa, hægri framfótur fylgir í sporaslóð hægri framfótar og vinstri afturfótur í sporaslóð vinstri framfótar. Hesturinn getur hreyft sig með jöfnum hreinum takti á hring bæði til hægri og vinstri.

5. Fjaðurmagn, spyrna – við taum: Hesturinn sækir áfram og er eftirgefanlegur, með hnakkabeygju, og í stöðugu, mjúku taumsambandi við hendur knapans. Rétt reising fyrir viðkomandi gangtegund.

6. Söfnun: Hesturinn hreyfir sig með frjálsari framhluta, hærri hreyfingum og meira fjaðurmagni vegna aukinna burðargetu afturfótanna.

7. Yfirferð: Hesturinn teygður á yfirferðargangi.”  
 

 






Til baka    






Deila
Til baka