| Auglýsingar - Senda frétt - Hafðu samband - |
|
11.12.2008 00:18 Mikið var gott að hann var gamall en ekki nýr Hörður á Kríunni bloggar
Mitt fyrsta verk í lok síðustu vaktatarnar og fjögurra daga frítarnar framundan var að taka hrossin á hús. Fríið ætlaði ég að nota til að járna öll tryppin mín átta talsins til að geta byrjað að þjálfa þau Þegar þetta er ritað er einn dagur eftir af fríinu og engin skeifa komin undir. ZETORINN BILAÐI!. Það hafa farið þrír dagar í að elta uppi bilunina í olíuverkinu. ÞÁ er gott að eiga góða að sem geta hjálpað mönnum með tíu þumalfingur. Þegar gamli traktorinn hrökk loksins í lag varð mér að orði: djöfuls.... munur ef maður ætti nýja traktor og þyrfti ekki að standa í þessu veseni. Þá sagði félaginn sem kann að gera við , vertu feginn að hann var ekki nýr því þá hefðum við ekki geta reddað þessu sjálfir ALLT TÖLVUSTÝRT OG ÞÚ FENGIÐ FEITAN REIKNING FRÁ VERKSTÆÐINU! | Til baka | ||||