Vilt þú Blogga á Hestafréttir?
Hefur þú áhuga á því að taka þátt í bloggsamfélagi Hestafrétta? Ef svo er þá tökum við á móti þér með opnum örmum. Bloggkerfi Hestafrétta er tengt fréttaveitu vefsins, þannig að um leið og bloggari setur inn sína færslu þá birtist hún í fréttum og á bloggi þannig verður hver færsla bloggara meira áberandi.
Nýjasta bloggfærsla hverju sinni birtist einnig í flipaglugga efst hægramegin á vefnum. Hafir þú áhuga á að blogga hjá Hestafréttum sendu þá upplýsingar um þig á hestafrettir@hestafrettir.is . ATH aðeins verða 10 til 12 bloggarar á vef Hestafrétta þannig að leitað er að aðilum sem hafa áhuga og eru þokkalega pennafærir.
Ritstjóri





