Laugardaginn 26. maí verður fyrsta brautskráningin úr Hólaskóla – Háskólanum á Hólum eftir að ný lög um háskólann voru samþykkt. kl. 13 Reiðsýning reiðkennaranema á skeiðvellinum kl. 14 Brautskráning – athöfnin verður í Þráarhöll Brautskráðir verða nemar úr hrossaræktardeild:
hestafræðingar og leiðbeinendur, tamningamenn og þjálfarar og reiðkennarar. Einnig brautskráir ferðamáladeild nema eftir diplómanám og fyrstu BA nemana í ferðamálafræði.Kór Hóladómkirkju syngur og Málmblásarakvintett Norðurlands spilar.
Að brautskráningu lokinni verður boðið uppá kaffihlaðborð í skólahúsinu.
















