Dreyri heitir hann og er sonur Seims frá Víðivöllum. Þennan hest fékk ég norðan úr Húnavatnssýslu. Hesturinn var á áttunda vetri þegar ég fékk hann og verðið fyrir klárinn var ekki hátt því að honum fylgdi sú umsögn að hann væri eins manns hestur. Ég komst fljótlega að því hvers vegna.
Í umgengni þá treysti hann ekki manninum fyllilega, var styggur í haga og einnig í gerði. Þegar taka átti hestinn inní stíu þurfti að bíða smástund þar til hann snéri að þér og þá gastu gengið að honum rólega og beislað hann. Hesturinn er vel viljugur og með stóru skrefin hans föður síns og allan gang þar að auki. Stórglæsilegur á velli. Þess vegna keypti ég hestinn.
Eftir tæp fjögur ár í minni eigu hefur hesturinn skánað þó nokkuð í umgengni en alltaf styggur og kom helst ekki nær manni en 5- 10 metra í haga. Þar sem hesturinn var sonur pabba síns langaði mig að fara að eiga við skeiðið í honum. Ég byrjaði að trimma hann til í nokkrar vikur og ákvað síðan að setja hestinn í 20 daga sundprógramm hjá Sundhestum í Áskoti í Ásahreppi til þeirra hjóna Jakobs og Arnheiðar.
Strax við upphaf meðhöndlunar í sundinu sýndi klárinn sýnar allar verstu hliðar. Þegar átti að þvo klárinn áður en hann var látinn synda lét hann eins og vitlaus væri, reyndi að slá með afturfótum í allar áttir og bíta til að verja sig.Þegar Jakob hafði lokið viða að þvo klárinn með einstakri lagni og þolinmæði synti Dreyri tvo sundspretti. Þetta var fyrsti dagurinn. Á lokadegi sundþjálfunarinnar var hesturinn gjörbreyttur. Hann var allur annar í umgengni, löngu hættur að amast við þvottinum og þótti orðið gott að láta þvo sér.
Gleðin skein úr augum hestsins og greinilegt að honum þykir skemmtilegt að synda. Í dag er hesturinn allt annar í umgengni, hægt að ganga að honum í haga og tekur mola úr lófa og stundum hægt að beisla hann en þó ekki alltaf.
Þessi mikla breyting á hestinum var algjör bónus því tilgangur með því að setja hestinn í sund var að auka styrk og úthald. Það var hrein unun að ríða hrossinu í sumar úthaldið og krafturinn var endalaus í ferðum sumarsins.
Öll aðstaða hjá þeim hjónum í Sundhestum er eins og best gerist. Þó aðstaðan sé frábær á Sundhestum þá er lykilatriði hversu fagmannlegur og tilfinninganæmur Jakob er í allri meðferð og þjálfun hrossanna.
Eftir þessa reynslu við þjálfun Dreyra Seimssonar í sundi mæli ég hiklaust með því að senda stressaða hesta i sundþjálfun. Í því felst mikil tamning á stuttum tíma að mínu mati.
Hörður Harðarson
















