Landsliðseinvaldur LH hefur valið þriðja ungmennið í landslið Íslands á HM í Hollandi. Það er Camilla Petra Sigurðardóttir sem var með hæstu einkunn ungmenna í fjórgangi á úrtökumótinu ásamt þeim frábæra árangri að verða Íslandsmeistari ungmenna á nýafstöðu Íslandsmóti barna, unglinga og ungmenna sem fram fór í Gusti.
Camilla fer með hestinn Sporð frá Höskuldsstöðum og óskum við henni til hamingju með að vera komin í landsliðið.
















