Dagskrárbreyting á Íslandsmóti í dag

Á knapafundi í morgunn var samþykkt að breyta dagskrá í dag á þann veg að fimmgangur meistara verður á dagskrá á undan gæðingaskeiði. Þannig að fimmgangur meistara hefst kl. 16:30 og gæðingaskeið í 1. flokki hefst kl. 19:30 að loknu...

Á knapafundi í morgunn var samþykkt að breyta dagskrá í dag á þann veg að fimmgangur meistara verður á dagskrá á undan gæðingaskeiði. Þannig að fimmgangur meistara hefst kl. 16:30 og gæðingaskeið í 1. flokki hefst kl. 19:30 að loknu matarhléi. Gæðingaskeið meistara kemur svo í beinu framhaldi af 1. flokknum.

Var breytingin borin upp á knapafundi og samþykkt þar án mótmæla. Mótið hefst kl. 10 með 150 m skeiði og svo 250 m skeiði í framhaldinu. Á knapafundinum var Sölvi Sigurðarson kjörinn sem fulltrúi knapa í yfirdómnefnd.

Veðrið er ekki skemmtilegt til keppni, rok og rigning, en vonandi mun keppendum þó ganga vel. Betur spáir með veður á morgun og hinn.