Helgina 3. – 5. apríl verður Sigrún Sigurðardóttir reiðkennari með námskeið í reiðhöllinni á Akureyri fyrir knapa sem vilja efla kjark og þor. Námskeiðið stendur frá föstudagssíðdegi til sunnudags og byrjar með sameiginlegum fundi þar sem þátttakendum verður raðað niður í hópa og skipulagið kynnt.
Í framhaldi af því hefst verklegi þátturinn í reiðhöllinni og stendur fram til kvölds. Á laugardag og sunnudag mæta hóparnir með hesta sína í reiðhöllina, einu sinni fyrir hádegi og einu sinni eftir hádegi en fylgjast með öðrum þess utan.
Námskeiðið er haldið á vegum Léttis og hafa félagsmenn forgang. Fjöldi þátttakenda verður 12-15 knapar og fellur námskeiðið niður ef ekki næst tilskilinn fjöldi.
Námskeiðsgjald: 16.000 kr. Tekið er á móti skráningum á netfangið sst@ma.isThis email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it (Sigríður).
















