Mikið hefur verið rætt um Tuma frá Stóra-Hofi og Hnokka frá Fellskoti. Talað er um að enginn eigi möguleika á að vinna þessa miklu gæðinga, en annað koma á daginn nú um síðustu helgi. Tumi tapaði fyrir Ölfu frá Blesastöðum 1A og Hnokki tapaði fyrir Muna frá Kvistum. Þetta segir manni að allt getur gerst og það er alltaf von. Nú er að bresta á Íslandsmót og síðan Heimsmeistaramót. Dagsform skiptir öllu máli þegar komið er í topp baráttuna í öllum sportum. Metnaður og agi þarf að vera í fyrirrúmi eins og sýndi sig best á árangri hjá Þórði, Hinna, Sigga og Sigursteini á síðasta Landsmóti.
Mikið hefur verið rætt um að dómarar þurfa að sjá hestana nokkrum sinnum til að gefa þeim tölur sem þeir eiga skilið en ég held að það sé liðin tíð og meðan við höfum einhvern sem þorir að gagnrýna dómgæslu verður dómgæslan réttari, því enginn vill fá neikvæð skrif um sig í starfi.
Nú held ég að við séum að horfa á svo mikla framför hjá svo mörgum knöpum að það getur hver sem er unnið hvern sem er. Landsmót var dæmi um það, þar sem Róbert Bergmann var efstur í unglingaflokki eftir glæsilega sýningu í forkeppni og milliriðli en klúðraði sínum málum með reynsluleysi, Jóhanna Margrét og Bruni frá Hafsteinsstöðum sigruðu með frábærri reiðmennsku. Eldjárn náði ekki að vinna upp forskotið sem Kjarnorka hafði eftir hæga töltið og lenti þar af leiðandi í öðru sæti. í A-flokki var bara einn hestur sem skilaði öllum gangtegundum til fulls, hinir voru á stökki þegar það átti að sýna brokk og aðeins einn hestur skeiðaði eins og maður vill sjá hesta skeiða í A-flokki á Landsmóti.
Á kynbótabrautinni komu margir hestar og hryssur með háar einkunnir inn en lækkuðu á Landsmóti og þá spyr maður sig hvað klikkaði, var það það sem ég sagði hér að ofan metnaðarleysi, agi eða dagsform? Eða dómarar búnir að ofdæma hross fyrir Landsmót eða voru hrossin hreinlega ekki að standa undir væntingum. Þetta er hestamennska sem við elskum þegar vel gengur og elskum ekki eins mikið í tvo daga þegar illa gengur.
En ég hlakka til að sjá hvað gerist á Íslandsmóti, hver kemur til með að vinna þá! Og tala nú ekki um hver verður Heimsmeistari! Höldum áfram að vera hestamenn og vinna með metnaði til að ná árangri í því sem við tökum okkur fyrir hendur og ekki hætta að trúa á sitt.
Njótið þess að vera til,
kveðja Fjölnir Þorgeirsson.
















