Er reiðmennska einföld eða flókin?

“Það sem gerir reiðmennskuna flókna er hversu einföld hún er. Flestir vilja líta út fyrir að vera gáfaðir og gera því hlutina flókna bæði fyrir sér og öðrum til að sýnast gáfaðir.” sagði dressúrreiðkennarinn minn við mig eitt sinn þegar...

“Það sem gerir reiðmennskuna flókna er hversu einföld hún er. Flestir vilja líta út fyrir að vera gáfaðir og gera því hlutina flókna bæði fyrir sér og öðrum til að sýnast gáfaðir.” sagði dressúrreiðkennarinn minn við mig eitt sinn þegar ég spurði hvernig hann færi sjálfur að. “Sjáðu til. Þetta er eins og keyra bíl.

Ég nota þrjá takka við stjórnun á hesti og mundu aðeins þrjá takka. Og hvaða takkar eru það, Mr. Larusson?” bætti hann við og beið eftir svari frá mér. Ég stamaði út úr mér nokkrum atriðum í fljótheitum og þau urðu fleiri en þrjú.

“Þú getur keyrt bíl ef stopptakkinn, áframtakkinn og beygjutakkinn virka og þú kannt á þá. Ekki satt? Þú verður að temja þér kissaðferðina í tamningum og þjálfun eins og sagt er í hernum.” sagði minn maður til skýringar og mér til fróðleiks. “Kaupi þetta með takkana, en hvað þýðir kissaðferðin.” spurði ég forvitinn og eilítið upplitsdjarfari eftir framhjáskotið með atriðin þrjú. “Kiss er stytting á frasanum keep it simple, stupid.” kom nú frá lærimeistaranum.

“Sjáðu til. Ég tékka á virkni þessara þriggja takka í byrjun hvers reiðtíma og fer ekki í næsta atriði fyrr en ég er sáttur við virkni þeirra. Ég stefni að því að virkni þeirra verði betri með aukinni þjálfun. Að takkarnir virki betur þýðir að hestur svari fljótar og við minna átak en áður. Einn þessara taka virkar í hvert sinn ver en hinir og þá legg ég meiri áherslu á að bæta virkni hans.” hélt fræðarinn áfram.

“Hvað kemur svo á eftir því?” kom frá mér einbeittum í því að fá uppskriftina í heild sinni að leyndardómnum. “Skyldi það koma þér á óvart en það fer eftir því hvað hesturinn kann, hvað er verið að þjálfa og kenna á því þjálfunarstigi sem hesturinn er staddur.” var svarið sem ég fékk.

Og áfram hélt hann. “Tökum nokkur dæmi. Piaff, sem er brokk á staðnum, er riðið á þann hátt að hesti er sagt að fara áfram á brokki. En áður en hann framkvæmir þá skipun þá er honum sagt að stoppa og áður en hann framkvæmir stoppið er honum sagt að fara áfram. Áfram og stopp er síðan endurtekið svo lengi sem beðið er um piaffið. Eins er það með hæga töltið ykkar Íslendinga. Þegar það er framkvæmt, sem best, þá er knapinn að nota áfram- og stopptakkana til skiptis. Þessir tveir takkar þurfa að virka STRAX og ýtt er á þá en bæði líkamlegur og andlegur styrkur er forsenda fyrir því að hestur skilji og geti framkvæmt svo safnandi æfingar. Þegar hestur er í tamningu þá er honum kennt að fara ákveðna leið og á ákveðnum hraða. Stýrið notar maður til að ákvarða hvert á að fara. Hraðann stillir maður af með því að nota bremsuna og bensíngjöfina eftir þörfum. Þegar því er náð þá hefur hestur náð því líkamlegu jafnvægi að hægt er að fara hugsa um að móta gangtegund og höfuðburð og það geri maður með fyrrgreindum tökkum.”

Hvernig virka takkarnir á þínum hesti?

Með kveðju
Magnús Lárusson
www.urvalshestar.is