Það getur verið skemmtilegt að spá og spekúlera í kynbótahestum í dag. Ég ákvað að breyta töluvert forsendum frá fyrri tveimur pistlum og eru ástæðurnar fyrir því að töluverður hluti afkvæma þeirra hesta sem eru í mestu notkun í dag eru ekki komin á tamningaaldur. Vegna þessa eru ekki hægt að reikna útfrá heildarfjölda afkvæma eins og með eldri hestana heldur reikna ég útfrá heildarfjölda afkvæma á tamningaaldri.
Að auki tek ég einnig inní myndina hlutfall af sýndum hrossum en ekki einungis hlutfall af hrossum í 1. Verðlaun. 70% niðurstöðunnar byggist á hlutfalli sýndri afkvæma sem komin er á tamningaaldur. Og 30% niðurstöðunnar byggist á árangri sýndra hross, eða hlutfall þeirra sem fara í 1. Verðlaun. En það sem ég vil helst fá að sjá eru líkurnar á að fá gott eða mjög gott hross undan meðalgóðri hryssu.
28 stóðhestar eru í úrtakinu, allir hestar sem hafa hlotið yfir 8,35 í aðaleinkunn á árunum 1995 – 2000 og eru því flestir í fullri notkun í dag og komin nokkur reynsla á þá sem kynbótahesta, einnig nokkrir hestar þar fyrir neðan sem hafa verið mikið notaðir. Niðurstaðan er mjög fylgjandi því sem ég reikna með að flestir hafa tilfinningu fyrir þótt nokkrir hestar komi á óvart bæði hvað varðar kynbótagetu og skort á henni!
Sá hestur sem trónir nokkuð á toppnum er Keilir frá Miðsitju. Keilir er undan Ófeigi frá Flugumýri og Kröflu frá Sauðárkróki en krafla hefur löngu sannað sig sem kynbótahryssa, hún á sex afkvæmi í fyrstu verðlaunum sem mörg hafa markað spor sitt í ræktununa. Það sem er einnig áhugavert með Kröflu er að hvert einasta afkvæmi undan henni fyrir utan eitt hefur verið sýnt og sannar það kynfestu hennar, afkvæmin eru ekki að klikka. Það kemur því ekkert á óvart að Keilir sé kynfastir bæði á útlit og hæfileika. 275 hross eru komin á tamningaaldur undan Keili, 102 þeirra hafa komið til dóms eða um 37% þeirra.
Þetta hlutfall er mjög hátt þar sem við verðum að taka inní reikninginn að mikið af geldingum fara aldrei í dóm þótt góðir þykja. Af þessum 102 hrossum sem hafa skilað sér í dóm hafa 50 þeirra farið í 1. Verðlaun eða yfir 8 í aðaleinkunn, það eru 49% sem er ótrúlegur árangur. Niðurstaðan er eiginlega sú að viljir þú vera eins viss um að fá gott hross og jafnvel mjög gott hross undan hryssunni þinni….. þá skaltu nota Keili.
Næsti hestur er ekki kominn af hátt dæmdum foreldrum þó ættin á bak við hann sé mjög sterk. Hróður frá Refsstöðum hefur eflaust komið mjög á óvart sem kynbótahestur. Hróður er undan Létti frá Stóra-Ási sem var sýndur í 8,02 sem geldingur. Léttir er undan Kolfinni frá Kjarnholtum sem hefur löngu sannað sig en Léttir er einnig undan 1. Verðlauna Gáskadóttir. Hróður er síðan undan hryssu með 7,66 í aðaleinkunn, 7,53 fyrir byggingu og jafna en ekki tilkomamikla hæfileikaeinkunn. Hróður er eina afkvæmi móður sinnir Ránar frá Refsstöðum en Rán er undan Nattfara frá Ytra-Dalsgerði.
Hróður er því vel heppnuð blanda af Kolfinni frá Kjarnholtum, Náttfara frá Ytra-Dalsgerði og Gáska frá Hofsstöðum. Samtals búa þeir til gangmikinn og hágengan hest kynbótahest sem er að skila töluvert betri útliti en væntingar stóðu til. Hróður á 177 afkvæmi á tamningaaldri, af þeim hafa 44 skilað sér til dóms eða um 25%. Af dæmdum hrossum hafa 24 farið í 1. Verðlaun sem er 54,55%. Almennt verður hann því að teljast mjög góður kostur, afkvæmin stigast vel í byggingu og fara allt uppí 8,76 fyrir þann lið og hæfileikarnir almennt jafnir og miklir.
Þriðji heturinn var felldur á síðasta ári eða gæðingurinn Óður frá Brún. Óður var mjög umdeildur kynbótahestur en þrátt fyrir það virtist hann alltaf skila sínu. Óður er undan Stíg frá Kjartansstöðum sem kom einmitt svo vel útúr síðustu könnun, Stígur virðist vera mjög kynfastur á góð hross. Móðurættin er heldur ekkert slor, Ósk frá Brún hefur skilað sjö afkvæmum sínum í 1. Verðlaun en hún er undan Ófeigi frá Flugumýri. Óður sjálfur hefur skilað 121 hrossi í dóm sem er um þriðjungur afkvæma á tamningaaldri. 47 þeirra í fyrstu verðlaun og því á Óður eftir að skila eftir sig djúpt spor í ræktun um ókomin ár, því getur enginn neitað.
Fast á hælum Óðs er fyrstu Orrasonurinn, Andvari frá Ey. Orra þarf ekki að kynna en Andvari er undan ósýndri hryssu sem ekki hefur gefið mikið utan Andvara. Þó hefur alltaf verið stunduð mikil hrossrækt í Ey og stofnin þar skilað mörgum góðum hrossum og mikilli kynfestu. Andvari hefur löngum sannað sig og er eftirsóttur stóðhestur.
Á hæla Andvara kemur annar Orrasonur, Garpur frá Auðsholtshjáleigu sem hefur verið seldur erlendis, einnig hafa næstu hestar þar á eftir yfirgefið landið, Glaður frá Hólabaki og Númi frá Þóroddsstöðum, allt hestar sem hafa skilað góðum hrossum.
En þeir hátt dæmdu stóðhestar sem virðast alls ekki hafa skilað sér í ræktuninni eru þó nokkrir. Bræðurnir Hamur og Þyrnir hafa litlu skilað í ræktunina en á botnunum sitja þeir Þytur frá Hóli og Eiður frá Oddhóli.
En heildarniðurstaðan er eftirfarandi og dæmi hver fyrir sig.
Fyrsti kassinn er einkunn viðkomandi stóðhests, þó fjöldi dæmdri afkvæma, næst afkvæmi í fyrstu verðlaun og loks fjöldi afkvæma sem kominn er á tamningaaldur. Niðurstörðurnar eru í gulu kössunum, hlutfall sýndra afkvæma, hlutfall sýndra hrossa sem fara í 1. Verðlaun og loks niðurstöða sem reiknar 70% af fyrri tölu og 30% af þeirri síðari.
|
dæmd |
1. verðl. |
fjöldi |
hlf.sýndra |
hlt. 1. v. |
|||
|
Keilir frá Miðsitju |
8,45 |
102 |
50 |
275 |
37,09 |
49,02 |
40,67 |
|
Hróður frá Refsstöðum |
8,39 |
44 |
24 |
177 |
24,86 |
54,55 |
33,76 |
|
Óður frá Brún |
8,34 |
121 |
47 |
392 |
30,87 |
38,84 |
33,26 |
|
Andvari frá Ey |
8,36 |
103 |
49 |
380 |
27,11 |
47,57 |
33,25 |
|
Garpur frá Auðsholtshjáleigu |
8,39 |
33 |
14 |
117 |
28,21 |
42,42 |
32,47 |
|
Glaður frá Hólabaki |
8,51 |
28 |
8 |
86 |
32,56 |
28,57 |
31,36 |
|
Númi frá Þóroddsstöðum |
8,54 |
45 |
26 |
234 |
19,23 |
57,78 |
30,79 |
|
Dynur frá Hvammi |
8,47 |
46 |
19 |
183 |
25,14 |
41,30 |
29,99 |
|
Markús frá Langholtsparti |
8,36 |
37 |
21 |
202 |
18,32 |
56,76 |
29,85 |
|
Kormákur frá Flugumýri |
8,3 |
61 |
27 |
261 |
23,37 |
44,26 |
29,64 |
|
Fáni frá Hafsteinsstöðum |
8,41 |
35 |
14 |
143 |
24,48 |
40,00 |
29,13 |
|
Hugi frá Hafsteinsstöðum |
8,31 |
64 |
28 |
288 |
22,22 |
43,75 |
28,68 |
|
Spuni frá Miðsitju |
8,33 |
39 |
14 |
160 |
24,38 |
35,90 |
27,83 |
|
Galsi frá Sauðárkróki |
8,44 |
93 |
33 |
385 |
24,16 |
35,48 |
27,55 |
|
Adam frá Ásmundarstöðum |
8,36 |
26 |
13 |
160 |
16,25 |
50,00 |
26,38 |
|
Nökkvi frá Vestra-Geldingaholti |
8,32 |
25 |
10 |
131 |
19,08 |
40,00 |
25,36 |
|
Seifur frá Efra-Apavatni |
8,41 |
16 |
5 |
75 |
21,33 |
31,25 |
24,31 |
|
Kvistur frá Hvolsvelli |
8,38 |
11 |
4 |
59 |
18,64 |
36,36 |
23,96 |
|
Logi frá Skarði |
8,4 |
82 |
30 |
446 |
18,39 |
36,59 |
23,85 |
|
Smári frá Skagaströnd |
8,34 |
30 |
11 |
164 |
18,29 |
36,67 |
23,80 |
|
Huginn frá Haga |
8,57 |
16 |
6 |
93 |
17,20 |
37,50 |
23,29 |
|
Askur frá Kanastöðum |
8,44 |
7 |
3 |
47 |
14,89 |
42,86 |
23,28 |
|
Óskar frá Litla-Dal |
8,44 |
23 |
6 |
110 |
20,91 |
26,09 |
22,46 |
|
Hilmir frá Sauðárkróki |
8,34 |
66 |
19 |
364 |
18,13 |
28,79 |
21,33 |
|
Þyrnir frá Þóroddsstöðum |
8,43 |
19 |
5 |
118 |
16,10 |
26,32 |
19,17 |
|
Skorri frá Gunnarholti |
8,36 |
26 |
9 |
216 |
12,04 |
34,62 |
18,81 |
|
Hamur frá Þóroddsstöðum |
8,5 |
31 |
6 |
167 |
18,56 |
19,35 |
18,80 |
|
Eiður frá Oddhóli |
8,38 |
28 |
8 |
237 |
11,81 |
28,57 |
16,84 |
|
Þytur frá Hóli |
8,47 |
33 |
9 |
267 |
12,36 |
27,27 |
16,83 |
















