Eru það peningar og fyrirmenni sem ráða MD VÍS 09?

Það er sorglegt að sjá hvernig farið er fyrir okkar einu sönnu Meistaradeild í hestaíþróttum. Í frétt sem birt er á Hestafréttum í dag klukkan 13.25 frá stjórn MD VÍS kemur fram að stórknapinn Daníel Jónsson sé komin í deildina...

Það er sorglegt að sjá hvernig farið er fyrir okkar einu sönnu Meistaradeild í hestaíþróttum. Í frétt sem birt er á Hestafréttum í dag klukkan 13.25 frá stjórn MD VÍS kemur fram að stórknapinn Daníel Jónsson sé komin í deildina í stað Þorvaldar Árna sem sagði sig úr deildinni fyrir nokkrum dögum síðan. Svo er birt viðtal við Örn Karlsson sem tekið er af blaðamanni Hestafrétta klukkan 22.27 í kvöld og þar segir Örn að Daníel Jónsson hafi verið tekin inn í deildina af því að hann sé svo góður knapi og engin sérstök önnur ástæða sé fyrir því. Nú skulum við aðeins staldra við og skoða hlutina í víðara samhengi en ekki í gegnum rörsjón eins og Örn gerir. Hrefna María Ómarsdóttir var næst inn í deildina samkvæmt úrslitum í úrtöku fyrir deildina. Samkvæmt reglum deildarinnar þá þurfa knapar að ná ákveðnum lágmörgum til að geta keppt í deildinni, þrátt fyrir að hafa unnið sig inn, en lágmörkin eru 5.80.

Hrefna María náði lágmörkunum en samt lætur Örn hafa eftirfarandi eftir sér „Sett voru skilyrði að engin myndi tryggja sér sæti nema að ná meðaleinkunn. Hrefna náði ekki meðaleinkunn og gæðakröfum“ Hvað gæðakröfur varðar veit ég ekkert um en það er klárt að Hrefna náði lágmarkinu sem var 5.80, en hún náði 5,95. En hvernig má það vera að stjórn deildarinnar getur ákveðið að velja einn af bestu knöpum landsins í deildina án þess spreyta sig í úrtöku? Er ég klár á því að stjórnin hefur ekki lagt þetta fyrir alla knapa deildarinnar sem ég myndi telja að ætti að gera.

Tökum sem dæmi að ég hafi nú mætt í úrtöku og komist alla leið inn og þá svona þokkalega yfir meðaltal. Þar myndi ég telja mig nokkuð góðan, vitandi hvaða knapar þetta væru sem ég myndi etja kappi við og einblína á hestakost og annað, nei og svo allt í einu er bara einhver fengin inn í deildina án þess að taka þátt í úrtöku og án þess að borga, jú það kostaði 15.000 krónur að fara í úrtökuna.

Það væri hægt að skrifa hér fram á vor hverskonar þvæla þetta er, en ég kýs að ljúka þessu með orðum Arnar Karlssonar úr viðtali við hann á Hestafréttum fyrr í kvöld en þar sagði hann“ Liðið og stjórnin eru sátt núna eins og þetta er. Svo eru fyrirtæki sem borga fullt af peningum fyrir deildina og hafa EKKI áhrif á þetta.“ Afhverju er hann að láta hafa þetta eftir sér „Svo eru fyrirtæki sem borga fullt af peningum fyrir deildina og hafa EKKI áhrif á þetta“ ?

Ef Michael Schumacher heimsmeistari í Formula1 kappakstri myndi ekki mæta í tímatöku fyrir keppni, haldi þið ÖLL virkilega að hann mætti velja sér stað á ráslínu og þá kannski bara ráspólinn sjálfan þegar að keppni kæmi?

Það er skömm af þessu öllu og myndi ég hvetja knapa deildarinnar til að mótmæla ALLIR og leggja bæði beisli og hnakk á hilluna og NEITA að keppa á komandi keppnistímabili nema að deildin bakki með þessa ákvörðun.

Það sem þetta snýst eingöngu um peninga eins og hægt er að lesa úr orðum Arnars, nú eða ekki, hvað skildu kostendur deildarinnar gera ef allir þessir bestu knapar myndu nú mótmæla.
Nú er ég ekki að halla persónulega á Daníel Jónsson, vill að það komi fram fyrir þá sem ekki skilja þennan lestur. Nafn knapans skiptir ekki máli heldur gjörningur deildarinnar.