Maður höfuðkúpubrotnaði er hann féll af hesti sínum um miðnætti síðastliðins föstudag. Atvikið átti sér stað við Langholtsveg í landi Ásatúns í Hrunamannahreppi á Suðurlandi.
Félagi mannsins kom að honum meðvitundarlausum. Ekki liggur fyrir hvað gerðist en málið er í rannsókn hjá lögreglunni á Selfossi.
Þá varð annað hestaslys um helgina er stúlka féll af hesti skammt frá Flúðum. Hún hlaut minni háttar meiðsl.
fréttin birtist á www.visir.is
















