Fjórðungsmót Austurlands 2007

Dagana 28. – til 1. júlí n.k. verður Fjórðungsmót Austurlands haldið á Stekkhólma á Völlum, í nágrenni Egilsstaða. Nýtt fyrirkomulag er að þessu sinni á Fjórðungsmóti Austurlands, nýtt fyrirkomulag felur í sér að öll hestamannafélög á svæðinu frá Hornafirði til...

Dagana 28. – til 1. júlí n.k. verður Fjórðungsmót Austurlands haldið á Stekkhólma á Völlum, í nágrenni Egilsstaða. Nýtt fyrirkomulag er að þessu sinni á Fjórðungsmóti Austurlands, nýtt fyrirkomulag felur í sér að öll hestamannafélög á svæðinu frá Hornafirði til og með Eyjafirði hafa keppnisrétt á mótinu, og einnig kynbótahross innan hrossaræktarsamtaka á sama svæði.

Þetta fyrirkomulag er ákveðið í þeirri von að Fjórðungsmót Austurlands árið 2007 verði glæsilegra en nokkru sinni áður, og að gestum og keppendum muni fjölga umtalsvert miðað við þau fjórðungsmót sem haldin hafa verið undanfarna tvo áratugi. Áður hafa félög á Austurlandi ein haft þáttökurétt á mótinu.

Undirtektir við nýtt fyrirkomulag hafa verið góðar að hálfu þeirra félaga á Norðurlandi sem fram að þessu hafa ekki haft aðild að mótinu. Fagráð í hrossarækt hefur samþykkt breytinguna og hefur lagt til lágmörk fyrir kynbótahross á mótið.

Keppnisgreinar á mótinu verða eftirfarandi:

A flokkur gæðinga
B flokkur gæðinga
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur
Tölt, opin flokkur
Fljúgandi skeið, 100m
250 metra skeið
Opin Stóðhestakeppni

Lágmörk í kynbótagreinum hafa verið ákveðnar af Fagráði í Hrossarækt sem hér segir:

Stóðhestar Hryssur
4 vetra 7,85 4 vetra 7,75
5 vetra 8,00 5 vetra 7,90
6 vetra 8,10 6 vetra 8,00
7 vetra og eldri 8,15 7 vetra og eldri 8,05

Mótshaldarar eru Hestamannafélagið Freyfaxi og Hrossaræktarsamtök Austurlands

freyfaxi.net