Fleiri vilja sjá Landsmót 2014 á Norðurlandi

Skoðunarkönnun sem fram fór hér á Hestafréttum og spurt var hvar ætti að halda Landsmót 2014, sýndi fram á að fleiri vilja halda Landsmótið 2014 á Norðurlandi en á Suðurlandi þó munurinn sé ekki mikill. Boðið var uppá þá fjóra...

Skoðunarkönnun sem fram fór hér á Hestafréttum og spurt var hvar ætti að halda Landsmót 2014, sýndi fram á að fleiri vilja halda Landsmótið 2014 á Norðurlandi en á Suðurlandi þó munurinn sé ekki mikill. Boðið var uppá þá fjóra staði sem sótt hafa um að halda Landsmót 2014; Hellu, Akureyri, Melgerðismela og Vindheimamela.
46,71% kjósenda vilja sjá Landsmótið á Hellu en það er eini staðurinn Sunnanlands sem hefur sóst eftir að halda mótið. 53,29% vilja sjá Landsmótið Norðurlands.

Vindheimamelar fá 30,19% atkvæða, eða ríflega helming af þeim atkvæðum sem falla Norðanlands. Hins vegar mætti líka stilla því upp þannig að um helmingur fólks vill sjá Landsmót Norðurlands, og Helmingur af þeim í Skagafirði á móti helming í Eyjafirði.

Það verður því spennandi að sjá hver niðurstaðan verður, en miðað við þetta eru Melgerðismelar sá staður sem fólk vill síst sjá verða fyrir valinu.