Fíflagangsmót verður haldið í Flekkudal í Kjós. laugardaginn 1. september nk. Mótið hefst kl. 16.00 og verður keppt í eftirtöldum greinum: Glussatölti – Kappreiðum – Bæjarboðreið og Hindrunarstökki . Í Glussatöltinu verða riðnir tveir hringir á hringvelli með vökva í glasi. Fimm eru saman inni á vellinum í einu og hver ræður hvort hann ríður upp á hægri eða vinstri hönd.
Keppandi er dæmdur úr leik ef hann skilar ekki í það minnsta 2/3 hluta af vökva í glasinu. Má síðan klára úr glasinu.
Í kappreiðunum er keppt í tíma og gildir einu á hvaða gangi farið er. Vegalengdin er ca. 100 metrar.
Í Hindrunnarstökki verða þægilega lágar hindranir.
Bæjarboðreið: Þar kemur hver bær með 4 keppendur. Leyfilegt er að fá lánaða knapa annars staðar frá.
Það telst frekar galli ef hestar eru skráðir í Worldfeng.
Tungubaslarar, roparar og hrekkjalómar eru sérstaklega boðnir velkomnir.:-)
Skemmtilegast væri ef keppandi mætir í frumlegum og skemmtilegum búningum.
Munið eftir þeirri góðu reglu að hægt er að múta dómurum.
Skráning er í síma 8997052 (Guðný) frá og með 30. ágúst og á staðnum alveg fram að starti.
Allir unnendur góðs gríns og íslenska hestsins eru boðnir velkomnir að koma að horfa á og hvetja sitt fólk.
















