Eitt hross drapst samstundis og aflífa þurfti annað vegna áverka, eftir að flutningabíll ók inn í hrossastóð á þjóðveginum á móts við bæinn Steinstaði í Öxnadal um klukkan ellefu í gærkvöldi. Tvö hross til viðbótar eru meidd, en þeim er hugað líf.
Ökumann flutningabílsins sakaði ekki en bíllinn skemmdist talsvert.
















