Á haustmánuðum er ýmislegt sem hestamenn finna sér til dundurs. Eitt af því vinsælasta eru hinar alkunnu folaldasýningar. Fyrirkomulagið er yfirleitt þannig að hópur manns hleypur um gólfin á eftir skelkuðu folaldi sem kann fótum sínum fjör að launa. Folöldin eru mjög misjöfn, sum þeirra eru sperrt og montin og sýna sínu bestu hliðar. Folöldin þurfa að vera kjörkuð og montin, þau þurfa að geta sýnt rými og gang.
En flest folöldin gera það ekki, þau eru hrædd og óörugg, fara yfirleitt um á stökki í örvæntingarfullri leit að móður sinni sem er í felum bakvið ógnandi fólk, vopnað pískum og plastpokum. Spennandi er að sjá samanburð undan hinum ýmsu stóðhestum, sumir stóðhestar gefa fallegri og betri „folöld“ en aðrir. Ekki síður getur verið gaman að sjá hryssurnar, margar hverjar í fersku minni sem miklir gæðingar, en komnar í annað hlutverk og virðulegra, orðnar bústnar stóðmæður. Svona folaldasýningar hafa þó meira skemmtanagildi en það að meta folöldin að einhverju viti. Til þess er fyrirkomulagið of frjálslegt.
Ég velti því fyrir mér hvort ekki sé kominn tími á breytingar og þróun. Eins og fyrirkomulagið er núna vilja þulir leitast við að finna eitthvað fallegt að segja um folöldin sem hlaupa um. Oft meira af afskaplega miklum vilja en raunsæi. Þetta er þó ekki algilt og margir mjög hæfir aðilar gefa folöldunum haldbæra umsögn. En þegar sýninginni líkur stendur ósköp lítið eftir. Ef folaldið bar ekki sigur úr bítum og sýndi ekki þann glæsileik sem ætlast var til, ertu engu nær um ágæti þess, byggingu, hæfileika eða hvar það stendur í samanburði við hin folöldin. Við Íslendingar erum mjög aftarlega á merinni varðandi mat á folöldum og unghrossum. Í FEIF löndunum er fyrirkomulagið fyrir löngu síðan komið í fast form og folöld og tryppi fá dóm frá lærðum kynbótadómurum um byggingu, hreyfingar/gang og síðan fas og geðslag.
Er ekki kominn tími til að við Íslendingar förum að nýta okkur þetta fyrirkomulag og fá betri dóm á folöldin okkar strax? Það myndi eflaust spara fóðurkostnað á stóðhestsefnin sem margir ræktendur halda gröðum í von um frægð og frama. Ég er ekki að tala um að dómarar séu alvitrir um ágæti eða væntanlega hæfileika folalds, það er alltaf mikil óvissa um væntanlega kosti folalds og tryppis, það vita allir. En í dag er gríðarlegur markhópur eftir ungum efnilegum merum og stóðhestsefnum. Það væri verðmætt bæði fyrir kaupendur og seljendur að geta sýnt fram á kosti og galla unghestsins með einhverjum haldbærum hætti. Oft leynast líka stjörnur í folöldum sem láta lítið fyrir sér fara en þegar þau eru skoðuð betur eru hér bestu gripirnir þegar uppi er staðið.
Ég hafði tal af Guðlaugi Antonssyni, hrossaræktarráðunauti og hann tjáði mér að hann og fleiri hefðu verið að gera tilraunir með að dæma folöld á þessum skala, m.a. í Bandaríkjunum og Evrópu. Guðlaugur ásamt föruneyti gerðu einhverjar breytingar á því kerfi sem notað er erlendis. Skalinn er línulegur og því krossað við ágæti hinna ýmsu eiginleika, mjög margir eiginleikar eru dæmdir bæði í byggingu og hæfileikum. Hægt er að reikna út einkunn eftir þessum krossum til að fá samanburð. Misjafn er hversu margir eiginleikar eru dæmdir og einnig hvort gefin er meðaleinkunn eiginleika eða ein einkunn fyrir þættina byggingu, hæfileika og fas (exteriur).
Guðlaugur var sammála því að gaman væri að koma á einhverskonar mati á unghrossum sem hægt væri að styðjast við og reikna út fylgni þegar hrossin væru tamin og dæmd síðar á lífsleiðinni. Af einskærri forvitni og tilraun til framfara höfum ákveðið að gera tilraun með slíka sýningu þann 15 nóvember næstkomandi í reiðhöllinni að Borg í Þykkvabæ. Sýningin er gerð í samstarfi með kynbótadómurum. Þar fær eigandi folalds í hendurnar mat á hinum ýmsum þáttum í fari folaldsins. þannig vonumst við til að sýningin skilji eftir sig meira fyrir hrossaræktandann og á sama tíma öðlist áhorfandinn meiri þekkingu og vitneskju um hina ýmsu þætti í fari folaldsins.
Á Íslandi hafa risið fjöldinn allur af reiðhöllum um allt land og það væri spennandi verkefni að koma á föstu formi í mati á unghrossum og folöldum um allt land. Einnig gæti verið gaman að skoða tölulegar upplýsingar í lok árs yfir allar sýningar haustsins, sem væru þá samanburðarhæfar. Þannig væri hægt að fá vísbendingu um kynbótagildi ungu hestanna sem hafa ekki enn skilað afkvæmum sem eru nægilega gömul til að vera tamin og dæmd í reið. Væri þetta ekki skemmtilegra og metnaðarfyllra form á folaldasýningum?
















